Borði á Netið í símann

Fullt af dóti í símann þinn

Fring

Allir vinir þínir á einum stað í farsímanum!

Náðu þér í Fring í farsímann þinn og þá getur þú sett öll helstu samskiptaforritin sem þú notar í tölvunni þinni, t.d. MSN, Facebook og Twitter, á einn stað.

Það sem Fring gerir er að það safnar saman vinum þínum, þú getur síðan smellt á vin þinn sem er online og ákveðið hvort þú viljir t.d. spjalla við hann á MSN.

Það er algjör óþarfi að vera við tölvu til að geta spjallað við og fylgst með vinum og vandamönnum, síminn er nóg. Þú getur náð í Fring á m.fring.com í símanum þínum eða inn á www.fring.com í tölvunni þinni.

 

Þú getur hringt Skype símtal úr Nova farsíma!

Nú getur þú hringt Skype símtal í alla sem þú þekkir hérlendis og erlendis úr Nova farsíma. Margir Íslendingar nota síma og spjall þjónustu Skype yfir netið og því eru væntanlega margir sem fagna því að geta fengið Skype í farsímann sinn.

Í dag er Skype þjónustan aðgengileg í völdum farsímum frá Nokia auk þess sem Skype hefur slegið í gegn hjá iPhone 3GS og iPod Touch eigendum.

Nánari upplýsingar fyrir Nokia farsíma, sjá OVI store eða www.skype.com og fyrir iPhone 3GS (3G/WiFi) og iPod Touch (WiFi), sjá App Store eða www.skype.com

Þú færð iPhone 3GS og iPod Touch í verslunum Nova. Einnig Nokia N97 mini, Nokia 6730 og Nokia E51 sem allir styðja Skype. Vertu velkomin(n) til Nova og við aðstoðum þig við að fá Skype í farsímann!

 

Facebook

Þú missir ekki af neinu með farsíma frá Nova því í öllum Nova símum kemstu á Facebook og ert sítengd(ur) vinum þínum og því sem þeir eru að gera.

Þú getur sett inn nýjan „status“ beint úr símanum þínum svo aðrir missi ekki af því sem þú ert að gera!

 

Sjónvarp í símanum!

Í farsímum frá Nova getur þú horft á sjónvarp. Fréttatímar frá RUV, Stöð 2 og BBC. Þú getur horft og hlustað á tónlist á NovaTV ásamt ýmsu öðru skemmtilegu sjónvarpsefni.

 

Sports Tracker

Ertu hlaupagarpur? Notaðu þetta frábæra forrit til þess að fylgjast betur með árangri þínum í hlaupinu! Forritið tengist GPS tækninni og mælir hvert einasta fótmál. Sportstracker.nokia.com

 

Tölvupósturinn í símanum

Farsími án tölvupósts, nei það er ekki hægt ... það er eins og að fá sér síma sem ekki hefur SMS möguleika! Það er einfalt og fljótlegt að setja upp tölvupóstinn í farsímanum – komdu við í næstu verslun Nova og við aðstoðum þig ef þú þarft á því að halda.

Það er svo miklu betra að vera með tölvupóstinn í símanum og geta fylgst með því sem er að gerast óháð því hvar maður er.

 

Fylltu á frelsið með símanum

Hjá Nova er hægt að kaupa frelsis áfyllingu á netinu hvort sem er með debit- eða kreditkorti. Best er að fylla á frelsið beint úr farsímanum inn á m.nova.is en það er gert með sama hætti og á nova.is.

Einnig er hægt að kaupa frelsis áfyllingar á sölustöðum N1.

 

Qik - þín útsending

Þetta einfalda og skemmtilega forrit Qik gerir þér mögulegt að sjónvarpa beint á netið því sem þú tekur upp á farsímann þinn.

Þú getur verið í beinni á netinu í tíma og ótíma og vinir og vandamenn geta fylgst með! Einnig er mögulegt að setja myndskeiðin inn á Facebook. www.qik.com

 

Það er ódýrt að fara á netið í Nova farsíma

Ef þú ert í 3G áskrift eða Súper Nova þá fylgir netið í símann (150 MB/mán.) en ef þú ert í 3G frelsi þá kostar dagurinn aðeins 20 kr. (5 MB/dag).

Notkun umfram 150 MB á mán. kostar 20 kr. á dag (5 MB). Ef notkun fer yfir 5 MB á dag þá byrjar nýr dagur - aðrar 20 kr.

Fyrir þá sem nota netið í farsímanum mjög mikið bjóðum við nú nýja Netið í símann pakka: 250 MB á 490 kr. og 1 GB á 990 kr. Netpakkana er hægt að fá í bæði áskrift og frelsi.

Topp hringitónar

1. Pikk me - Steindi Jr.
2. Það er g... - Gunnar Birgisson
3. Geðveikt fínn ... - Steindi Jr
4. Eftirparty hj... - Steindi Jr.
5. Viltu dick? - Sykur

Topp Vinatónar

1. Nova tónninn - Nova
2. Kaffivél - Nova
3. Eftirparty hj... - Steindi Jr.
Nova verslanir Lágmúla 9, Smáralind, Kringlunni, Akureyri og Selfossi | Þjónustuver 519 1919