Galaxy S20+ 5G
Ný stjarna á vetrarbrautinni Samsung Galaxy S20 er mættur!
Frábær sími sem er smekkfullur af öllu því nýjasta og besta sem völ er á í farsímamarkaðnum í dag og er einstaklega sterkbyggður og hentar því íslenskum aðstæðum vel.
Litir

Stærð
Skoðaðu hvernig þú getur dreift greiðslunum
2 Greiðslur
Frá90.136 kr. / mán
Síminn er með frábæran Dynamic AMOLED skjá sem skilar kristaltærri upplausn, fallegum litum og djúpum svörtum lit sem þekur framhlið símans. Skjárinn er 120hz sem þýðir það að hann endurnýjar myndina á skjánum 120 sinnum á sekúndu. Það þýðir að allt sem þú gerir í símanum, hvort sem það er að horfa á myndbönd, vafra um á netinu eða spila tölvuleiki, gengur snurðulaust fyrir sig og ekkert ætti framhjá þér að fara.
Hraður, skilvirkur og sterkbyggður
Síminn er smekkfullur af öllu því besta og nýjasta sem völ er á. Frábær örgjörvi í samspili við mikið innra minni og vel útfærðum hugbúnaðarlausnum skila þér mögnuðum hraða og vinnslu sem erfitt er að toppa. Svo þú getur þotið áhyggjulaus á milli smáforrita á ofurhraða. Allri þessari tækni er svo pakkað saman í sterkan málmramma og sérstaklega hert gler sem skilar sterkbyggðu og rakaheldu tæki sem getur tekist á við hvaða aðstæður sem er.
Þreföld ánægja
Síminn skartar frábærri myndavél að aftan með þremur linsum sem vinna vel saman svo þú getur tekið skarpar myndir og myndbönd í ótrúlegum gæðum. Þökk sé nýrri tækni er hægt að taka betri myndir úr fjarska, við minni birtuskilyrði og með ótrúlegum stöðuleika. Svo það er allt í lagi að vera með skjálfandi hendur í myrkrinu, þú endar ábyggilega með glæsilega mynd.
Rafhlaðan hefur verið betrumbætt og skilar hún nú betri og lengri rafhlöðuendingu og að sjálfsögðu getur þú deilt henni með öðrum í kringum þig því síminn virkar sem þráðlaus hleðsla, hvort sem þú þarft að hlaða snjallúrið þitt, heyrnartól eða aðstoða rafhlöðulausann vin. Rafhlaðan styður einnig 45W hleðslu svo þú getur fullhlaðið símann þinn á rúmri klukkustund.
Tilbúinn í framtíðina
Eitt er fyrir víst að tæknin hættir aldrei að þróast og símar verða að þróast í takt við hana. Þessi sími styður 5G sem er næsta kynslóð farsímanets sem styður margfaldan hraða en þann sem við þekkjum í dag. 5G prófanir eru í gangi hjá Nova og munum við geta boðið uppá þessa þjónustu í framtíðinni.
Stýrikerfi
Android 10.0; One UI 2
Skjár
Dynamic AMOLED 2X capacitive touchscreen, 16M colors HDR10+ Always-on display 120Hz (up to FHD resolution)
Myndavél
12 MP, f/1.8, 26mm (wide), Dual Pixel PDAF, OIS 64 MP, f/2.0, (telephoto), PDAF, OIS, 3x hybrid optical zoom 12 MP, f/2.2, 13mm (ultrawide), AF, Super Steady video 0.3 MP, TOF 3D, (depth)
Kerfi
4G LTE, 3G,
Skjástærð
6.7 inches, 108.0 cm2 (~90.5% screen-to-body ratio)
Rafhlaða
Non-removable Li-Po 4500 mAh battery
2G: GSM 850 / 900 / 1800 / 1900 - SIM 1 & SIM 2 (Dual SIM model only)
3G: HSDPA 850 / 900 / 1900 / 2100
4G: LTE band 1(2100), 2(1900), 3(1800), 4(1700/2100), 5(850), 7(2600), 8(900), 12(700), 13(700), 17(700), 18(800), 19(800), 20(800), 25(1900), 26(850), 28(700), 32(1500), 38(2600), 39(1900), 40(2300), 41(2500), 66(1700/2100)
Speed: HSPA 42.2/5.76 Mbps, LTE-A (7CA) Cat20 2000/200 Mbps
Útgáfuár: 2020, February 11
Stærð: 161.9 x 73.7 x 7.8 mm (6.37 x 2.90 x 0.31 in)
Þyngd: 186 g (6.56 oz)
SIM: Single SIM (Nano-SIM and/or eSIM) or Hybrid Dual SIM (Nano-SIM, dual stand-by)
Bygging: Samsung Pay (Visa, MasterCard certified) IP68 dust/water resistant (up to 1.5m for 30 mins)
Upplausn: 1440 x 3200 pixels, 20:9 ratio (~525 ppi density)
Chipset: Exynos 990 (7 nm+) - GlobalQualcomm SM8250 Snapdragon 865 (7 nm+) - USA
Örgjörvi: Octa-core (2x2.73 GHz Mongoose M5 & 2x2.60 GHz Cortex-A76 & 4x2.0 GHz Cortex-A55) - GlobalOcta-core (1x2.84 GHz Kryo 585 & 3x2.42 GHz Kryo 585 & 4x1.8 GHz Kryo 585) - USA
GPU: Mali-G77 MP11 - GlobalAdreno 650 - USA
Minniskortarauf: microSDXC (uses shared SIM slot)
Innbyggt minni: 128GB 8GB RAM
Myndavéla eiginleikar: LED flash, auto-HDR, panorama
Myndbandsupptaka: 3240p@30fps, 2160p@30/60fps, 1080p@30/60/240fps, HDR10+, dual-video rec., stereo sound rec., gyro-EIS & OIS
Sjálfu myndavél: 10 MP, f/2.2, 26mm (wide), 1/3.2", 1.22µm, Dual Pixel PDAF
Sjálfu eiginleikar: Dual video call, Auto-HDR
Sjálfu myndbandsupptaka: 2160p@30/60fps, 1080p@30fps
WLAN: Wi-Fi 802.11 a/b/g/n/ac/ax, dual-band, Wi-Fi Direct, hotspot
Bluetooth: 5.0, A2DP, LE, aptX
GPS: Yes, with A-GPS, GLONASS, BDS, GALILEO
NFC: Yes
Útvarp: FM radio (USA & Canada only)
USB: 3.2, Type-C 1.0 reversible connector
Skynjarar: Fingerprint (under display, ultrasonic), accelerometer, gyro, proximity, compass, barometer
Fleiri eiginleikar: ANT+ Bixby natural language commands and dictation Samsung DeX (desktop experience support)