Nova ehf. var stofnað í maí 2006 með það að markmiði að meta mögulega innkomu félagsins á íslenskan farsímamarkað. Í framhaldi af frumskoðun og gerð viðskiptaáætlunar var sótt um 3G rekstrarleyfi á Íslandi í desember 2006. Nova fékk 3G leyfinu formlega úthlutað í lok mars 2007 og gat í framhaldi af því sett allt á fullt við uppbyggingu félagsins. Nova hóf að bjóða þjónustu þann 1. desember 2007.
Nova á og rekur eigið 3G farsíma- og netkerfi (UMTS HSDPA 7,2 Mbps) sem nú nær til um 86% landsmanna en stöðugt er unnið að þéttingu og frekari útbyggingu kerfisins. Utan 3G þjónustusvæðis Nova eru viðskiptavinir fyrirtækisins ávallt í öruggu GSM farsímasambandi um allt land og erlendis. Sjá þjónustusvæði Nova.
Nova býður hefðbundna farsímaþjónustu með áherslu á netið í símann. Viðskiptavinir Nova geta flutt símanúmerið sitt með sér til Nova eða valið sér nýtt Nova númer sem byrjar á 77x-xxxx. Nova býður einnig háhraða netþjónustu, 3G internet. Um er að ræða hefðbundið netsamband með allt að 5 Mb/s. Sjá þjónustuframboð Nova.
Júní 2006 |
Nova fær 3G tilraunarleyfi. |
Desember 2006 |
Póst- og fjarskiptastofnun auglýsir 3G útboðið. |
Mars 2007 |
Nova fær 3G rekstarleyfi.
Undirbúningur að opnun Nova fer á fullt. |
Desember 2007 |
Nova opnar og hefur þjónustu.
Formleg opnun aðeins 8 mánuðum frá úthlutun leyfsins. |
Sumarið 2008 |
3G þjónustusvæði Nova stækkað.
Öllum kröfum fjarskiptaútboðsins mætt. |
Desember 2008 |
Viðskiptavinir Nova rétt rúmlega 30.000 talsins.
9% markaðshludeild. |
Nóvember 2009 |
Nova valið markaðsfyrirtæki ársins 2009 (ÍMARK) |
Desember 2009 |
Viðskiptavinir Nova nákvæmlega 63.254 talsins.
Rétt tæplega 20% markaðshlutdeild.
3G farsíma- og netkerfi Nova nær til 86% landsmanna.
3G uppbygging Nova heldur áfram skv. útboðskröfum upphaflegs 3G fjarskiptaleyfis frá Póst- og fjarskiptastofnun. |
Janúar 2010 |
Nova hlýtur hæstu einkunn allra farsímafyrirtækja á Íslandi í
Íslensku ánægjuvoginni fyrir árið 2009 og er í öðru sæti yfir öll fyirrtæki sem mæld voru. |
Í grunninn er Nova þjónustufyrirtæki á sviði samskipta.
3G farsíma- og netkerfi Nova gerir okkur mögulegt að koma betur til móts við þarfir markaðarins fyrir nútímasamskipti.
Nova opnar fólki nýjar dyr að stærsta skemmtistaði í heimi, internetinu!
Hlutverk Nova er að auðvelda samskipti, öflun og miðlun upplýsinga og afþreyingar.
Nova gerir viðskiptavinum sínum mögulegt að nýta tímann betur, á skilvirkari og skemmtilegri hátt.
„We have to understand that cellphones are not a technological phenomenon, they are a social phenomenon. It´s connecting people; it is emotions.“
John Naisbitt, Mindset
Samskiptahringurinn
Nova gerir viðskiptavinum sínum mögulegt að velja það samskiptaform sem best hentar hverju sinni:

Eitt af markmiðum Nova er að vera leiðandi í notkun netsins á nýstárlegan og skemmtilegan hátt með þarfir viðskiptavina fyrirtækisins að leiðarljósi.
Vinnustaðurinn
Í júní 2010 voru starfsmenn Nova 93 talsins í 85 stöðugildum. Hjá Nova starfa konur og karlar á öllum aldri með fjölbreytta menntun og reynslu. Við erum ungt fyrirtæki og höfum frá fyrsta degi tileinkað okkur jafnrétti á vinnustað! Sjá starfsmannalista hér.
Við köllum eftir frumkvæði og virkri þátttöku starfsmanna í öllu sem við gerum – því það gerir okkur að því sem við erum.
Slagorð okkar er Nova stærsti skemmtistaður í heimi!
Nova leggur áherslu á góðan liðsanda og það sé skemmtilegt í vinnunni.
Ein af lykilforsendum vellíðan á vinnustað er virðing og vinátta milli starfsmanna.
Stefna Nova er að byggja undir góðan liðsanda og að skapa sterka og öfluga liðsheild því samvinna er lykillinn að árangri okkar.
Stefna Nova er að veita starfsmönnum fyrirtækisins stuðning og hvatningu til að gera Nova að besta vinnustað í heimi!
Hjá Nova er lögð áhersla á að laða til sín starfsmenn sem hafa metnað til að ná árangri í starfi, einstaklinga sem vilja takast á við krefjandi verkefni, geta tekið ábyrgð og sýnt frumkvæði og sveigjanleika í starfi.
Miklar kröfur eru gerðar til starfsmanna Nova og þá skiptir líka máli að starfsmann upplifi að stuðningur stjórnenda sé til staðar og að sveigjanleikinn virki í báðar áttir!
Æskilegt er að starfsmenn í framlínu hafa stúdentspróf eða sambærilega menntun. Það fer síðan eftir eðli starfsins hvernig menntun er nauðsynleg en oftar en ekki er háskólapróf og/eða framhaldsmenntun á háskólastigi skilyrði.
Þegar ráðið er í lausar stöður innan fyrirtæksins er eðlilega fyrst horft til núverandi starfshóps áður en leitað er út fyrir fyrirtækið.
Reglulega er rætt við starfsmenn um frammistöðu auk þess sem formleg starfsmannasamtöl fara fram einu sinni á ári.
Haldnir eru vinnufundir með öllum starfsmönnum einu sinni til tvisvar á ári þar sem stefnumótun og innviðir fyrirtækis eru ræddir.
Markmið Nova er að byggja undir Nova skólann svo faglega sé staðið að móttöku nýliða og hugað að endurmenntun starfsmanna.
Rík áhersla er lögð á að starfsmenn virða þá ábyrgð sem þeim er sýnd varðandi meðhöndlun upplýsinga og þeir gæti fylgsta trúnaðar í öllu er viðkemur starfinu og vinnustaðnum.
Stjórnendur Nova
Samskipti milli starfsmanna og deilda eru óformleg – við erum öll í sama liðinu!
Stjórnunarstefna Nova er einföld:
- Komdu fram við aðra eins og þú vilt að sé komið fram við þig.
- Vertu góð fyrirmynd og láttu verkin tala.
Starfsmannafélag Nova, Studio 77
Starfsmannafélagið Studio 77 stendur fyrir fjölmörgum skemmtunum til að hrista okkur saman. Þá er rík áhersla lögð á öflugt innra markaðsstarf.
Markmið starfsmannafélagsins er að standa fyrir litlum sem stórum viðburðum – innan sem utan vinnutíma til að gera öfluga liðsheild enn öflugri og góðan vinnustað enn skemmtilegri!
Dæmi um viðburði á vegum Studio 77 og Nova
Starfsskiptadagar Nova Nörda dagurinn
Ólympíuleikar Nova Eurovision / HM potturinn
Árshátíð Nova Jólaball
Amazing Race Bootcamp
Starfsmaður mánaðarins Heilsuvika
Makar starfsmanna eru ávallt velkomnir að taka þátt í þeim viðburðum og skemmtunum sem starfsmannafélagið og Nova stendur fyrir.
Starfsmannavefurinn studio77 gegnir veigamiklu hlutverki í innrastarfi Nova.
Upplýsingar um Nova
Nafn fyrirtækis: Nova ehf.
Skráning: Nova ehf. er skráð hlutafélag í fyrirtækjaskrá.
Stjórn: Tómas Otto Hansson stjórnarformaður, Sigþór Sigmarsson og Ásdís Halla Bragadóttir.
Framkvæmdastjóri: Liv Bergþórsdóttir.
Höfuðstöðvar: Lágmúla 9, 108 Reykjavík.
Kennitala: 531205-0810
VSK númer: 94181
Veffang: nova.is
Netfang: nova@nova.is
Sími: 5191000
Fax: 519 0001