Hvað er 4G?
4G er heiti á fjórðu kynslóð farsímanetkerfa. Fyrsta kerfið sem flutti símtöl milli farsíma var NMT kerfið og þar á eftir kom GSM eða 2G kerfið. Með aukinni almennri netnotkun kom krafa um að geta notað netið í símanum líkt og í tölvum og því kom 3G kerfið sem er í raun netkerfi frekar en símkerfi. Möguleikar á gagnaflutningum eins og að hlaða niður tónlist og horfa á kvikmyndir jukust með tilkomu 3G, þ.e. háhraðanets, auk þess sem tölvur jafnt og farsímar geta tengst kerfinu. 4G er næsta skref í háhraðanettengingum fyrir tölvur, farsíma og fleiri nettengd tæki og er allt að tífalt hraðara en 3G og um þrefalt hraðara en hröðustu ADSL tengingar.
4G er nú þegar komið í notkun á öllum Norðurlöndunum og Bandaríkjunum og fleiri lönd eru að fara af stað í 4G. Þannig er t.d staðfest að yfir 160 samningar hafi verið gerðir í meira en 60 löndum um kaup og uppbyggingu 4G kerfa.
Hvenær kemur 4G?
Nova er með 4G tilraunaleyfi og nú eru í gangi prófanir. Nova vonar að Póst- og fjarskiptastofnun muni taka ákvörðun um að úthluta tíðniheimildum fyrir 4G á næstu mánuðum og að í framhaldi af því verði hægt að hefja uppbyggingu kerfisins fyrir alvöru.
Í hverju felast 4G prófanir Nova?
4G tilraunasvæði Nova nær frá Lágmúla og niður í miðbæ Reykjavíkur og hafa starfsmenn tæknisviðs Nova hafið prófanir á m.a. hraða kerfisins og flutningsgetu. Í byrjun árs 2012 fengu rúmlega 100 viðskiptavinir Nova tækifæri til að taka þátt í að prófa 4G tæknina. Þá er öllum velkomið að líta við í 4G íbúð Nova sem er staðsett í Lágmúla 9.
Af hverju 4G íbúð?
Nova hefur innréttað 4G heimili í verslun sinni í Lágmúla í því skyni að prófa möguleika 4G tækninnar fyrir heimili. Tæki sem eru inni á flestum heimilum, s.s. sjónvörp, heimasími og hljómflutningstæki, eru í síauknum mæli orðin nettengd. Með 4G er komin nettenging fyrir heimili sem öll þessi tæki geta tengst. Í framtíðinni munu fleiri og fleiri tæki tengjst þráðlaust við farsimanetið, t.d. öryggiskerfi og myndavélar.
Hverju breytir 4G?
Eins og með allar nýjungar þá er engin leið að spá fyrir um hverju útbreiðsla 4G kemur til með að breyta. En við vitum að ný tækni getur opnað nýjar dyr. Sem dæmi má nefna að með tilkomu iPhone og snjallsímanna varð sprenging í þróun svokallaðra smáforrita (app). Það er líklegt að við munum sækja meira og meira myndefni yfir farsímakerfin, eins og t.d. YouTube myndbönd og annað internetsjónvarpefni. En umfram allt, aukinn hraði í samskiptum opnar nýja möguleika; gerir viðskipti greiðari og öruggari og tryggir að alltaf sé hægt að nálgast nýjustu upplýsingar, hvort sem það er texti, myndefni eða tal.
Framfarir í tækjum sem tengjast þráðlausum netkerfum eru nú gríðarlega örar og víða um heim eru fyrirtæki að stíga sín fyrstu skref í 4G þjónustu til þess að geta þjónað fólki með öll þessi nýju og spennandi tæki. Með 4G eykst gagnahraði verulega auk þess sem tæknin opnar dyr að margvíslegum nýjum þjónustumöguleikum fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Verða heima-nettengingar eins og ADSL óþarfar?
Já við teljum að 4G geti komið í staðinn fyrir ADSL tengingar. En engu að síður er ekkert eitt sem hentar öllum. ADSL verður áfram og ljóstengingar, 3G og GSM verður áfram og mikið notað. En 4G er frábær viðbót sem opnar marga nýja möguleika.
Hvaða tæki eru tilbúin fyrir 4G?
Enn sem komið er eru ekki mörg símtæki eða tölvur sem eru tilbúin fyrir þann hraða sem 4G keyrir á. Uppbygging 4G kerfa er nú þegar í fullum gangi um allan heim og þá er þess ekki langt að bíða að framleiðendur sjái sér hag í að aðlaga sín tæki að þessum nýju háhraðakerfum.
Munið þið nota öll þrjú tínissviðin sem eru í boði? (800Mhz, 1800Mhz og 2600Mhz)
Það liggur ekki enn fyrir og fer eftir því hvernig Póst- og fjarskiptastofnun skipuleggur tíðnisviðið. En við búumst við því að 1800 MHz og 800 MHz verði fyrst notuð.
Á hvaða hraða stefnið þið á þegar dreifikerfið fer af stað sem besta mögulega hraða upp/niður?
4G tilraunakerfi Nova gerir okkur mögulegt að vinna í mælingum og prófunum á hraða kerfisins.
Við gerum ráð fyrir að notandinn upplifi 20-40 Mb/s þegar kerfið er komið í notkun, en oft er talað um að 4G sé 10 sinnum hraðvirkara en 3G.
Samkvæmt prófunum Nova er vel hægt að ná 70-80 Mb/s við góðar aðstæður en það endurspeglar þó ekki þann hraða sem notandinn getur búist við.