Prófaðu Nova netsímann i 30 daga – það fylgja 1.000 mín. og 500 SMS úr Nova netsíma í Nova farsíma!
Þú getur sótt Nova netsímann og sett hann upp á tölvunni þinni fyrir 0 kr. Þegar þú ert komin(n) með Nova netsímann getur þú hringt fyrir 0 kr. í alla aðra Nova netsíma og í Nova farsíma (1.000 mín. og 500 SMS). Þú getur einnig hringt og sent SMS í öll önnur símanúmer en þá er greitt fyrir það skv. verðskrá Nova netsímans.
Eftir 30 daga ákveður þú hvort þú vilt halda áfram að nota Nova netsímann
Þegar þú hefur notað Nova netsímann í 30 daga sendum við þér tölvupóst til að kanna hvort þú vilt halda áfram að nota netsímann. Árgjald Nova netsímans er 990 kr. og við bjóðum það á 50% lægra verði (495 kr.). Árgjaldið er tekið af inneign hjá viðskiptavinum í frelsi en sett á símreikning hjá viðskiptavinum í áskrift.
Árgjaldinu fylgja 100 mínútur og 50 SMS á mánuði í 12 mánuði úr Nova netsíma í Nova farsíma. Ath. það er ekkert mánaðargjald í Nova netsímanum!
Nova netsíminn tengist Nova farsímanúmerinu þínu
Nova netsíminn tengist farsímanúmerinu þínu. Ef þú hringir úr Nova netsímanum í símanúmer sem kostar að hringja í þá er rukkað fyrir símtalið af frelsis inneign þeirra sem eru í frelsi en sett á símreikning hjá viðskiptavinum í áskrift.
Nova netsíminn virkar á PC/MAC en ekki á iPad.