Skip to main content

Netöryggi Nova.

Hjá Nova er rekstraröryggi þitt forgangur og lykilatriði í hönnun fyrirtækjalausna.

Áreiðanlegt net

Uppitími allt að 99,98%

Öruggt net

Innbyggðar DDoS varnir

Varaleiðir

Samfelldur rekstur yfir öll net

Vörn á netumferð

Stýrðu netumferðinni

ÖRYGGI

Netöryggi sem þú getur treyst

Öryggi er lykilatriði í hönnun fyrirtækjalausna Nova. Kerfið okkar er einstakt að verjast DDoS árásum bæði erlendis og innanlands þar sem netumferð er stöðugt vöktuð.

Netöryggi sem þú getur treyst

DDoS varnir

Sjálfvirk vörn gegn dreifðum netárásum, bæði erlendis og innanlands.

Stöðug vöktun

Netumferð er vöktuð allan sólarhringinn til að greina óeðlilega hegðun.

Öryggisstýring

Sérsniðin stýring á öryggisreglum og aðgangi að netkerfinu.

ELDVEGGUR

Sérsniðin vörn á netumferð

Verndaðu reksturinn með lausn sem tryggir að aðeins rétt umferð komist í gegn. Í samstarfi við Fortinet er hægt að setja upp eldvegg sem fylgist með netumferð, stöðvar árásir og greinir grunsamlega hegðun. Öflug og einföld leið til að auka öryggi í rekstrinum.

Sérsniðin vörn á netumferð

Rétt umferð í gegn

Aðeins netumferð sem á að komast í gegn fær leyfi.

Vörn gegn árásum

Fylgist með netumferð og bregst við grunsamlegri hegðun.

Öryggi sem hentar rekstrinum

Lausn sem styður við reksturinn án óþarfa flækju.

VARALEIÐIR

Varaleiðir fyrir reksturinn

Tryggðu reksturinn með tvöfaldri tengingu sem heldur sambandi gangandi ef önnur leið bilar. Lausnin getur sameinað ljósleiðara, 5G og gervihnattatengingu þannig að umferð færist sjálfkrafa yfir á aðra leið þegar þess þarf. Einföld og örugg leið til að verja uppitíma þar sem ekkert má stöðvast.

Varaleiðir fyrir reksturinn

Sjálfvirk skipting á milli leiða

Umferð færist sjálfkrafa yfir á aðra tengingu ef bilun verður.

Tvöföld tenging fyrir meiri rekstraröryggi

Hægt er að tengja saman ljósleiðara, 5G og gervihnött eftir þörfum.

Uppitími sem skiptir máli

Heldur mikilvægum kerfum tengdum þegar aðaltengingin dettur út.

INNVIÐIR

Sterkir innviðir tryggja þínum rekstri forskot

Með öflugum innviðum, byggðum á eigin IP neti og bylgjukerfi, tengjum við fjölda fyrirtækja og stofnana um allt land við ljósleiðarahraða sem er sérsniðinn að rekstrinum. Að auki tryggir 5G netið næstu kynslóð háhraðalausna um land allt sem jafnast á við ljósleiðara

Sterkir innviðir tryggja þínum rekstri forskot

Ljósleiðari sérsniðinn að rekstri

Ljósleiðari með hraða sem er sérsniðinn að rekstri fyrirtækja með einstökum innviðum.

Varaleiðir tryggja samfelldan rekstur

Svo fyrirtæki þitt stoppi aldrei.

5G næstu kynslóðar

5G netið tryggir háhraðalausnir um land allt sem geta jafnast á við ljósleiðara.

SÉRLAUSNIR

Öruggt net yfir farsímakerfi

Þú getur tengt síma og tæki á öruggara net (APN) yfir farsímakerfi. Lausnin veitir meiri stjórn, betri yfirsýn og styður öruggari samskipti í daglegum rekstri.

Öruggt net yfir farsímakerfi

Öruggari samskipti

Dulkóðuð og vernduð gögn í farsímakerfi.

Meiri stjórn

Stýrðu hvaða tæki tengjast og hvernig.

Betri yfirsýn

Fylgstu með notkun og umferð í rauntíma.

VITUNDARVAKNING

Netöryggi fyrirtækja

Netöryggi í dag snýst ekki bara um tölvukerfi. Það snýst um aðgang, traust og eftirlit. Flest alvarleg atvik gerast ekki vegna tæknilegra veikleika — þau gerast þegar einhver fær aðgang sem átti ekki að fá hann.

Misnotkun á aðgöngum starfsmanna

Ef einhver kemst inn með réttum aðgangi þarf hann ekki að brjótast inn. Hann notar kerfin eins og starfsmaður.

Fólk er enn lykilþátturinn

Flestar árásir byrja hjá fólki. Þær koma með tölvupósti, símtali eða skilaboðum sem líta eðlilega út. Tækni og gervigreind gera blekkingar mjög trúverðugar.

Kerfin eru flóknari en eftirlitið

Fyrirtæki nota fleiri kerfi og fleiri samstarfsaðila. Aðgangar eru oft of margir og með of mikil réttindi. Þá verður eftirlit erfiðara og óeðlileg hegðun getur farið fram hjá okkur.

Hafa samband

Fylltu út formið og við munum hafa samband við þig fljótt og örugglega.