Aðeins hjá Nova Heimili
eero - Alvöru samband
Wi-Fi 7 TrueMesh tæknin færir heimilinu hratt og stöðugt net og dreifir því um hvern krók og kima. Loksins getur þú sagt bless við dauða bletti!
eero bjargar sambandinu
Tengdu eero við netsnúru og rafmagn. Appið leiðir þig í gegnum uppsetninguna. Sannkölluð plögg & play upplifun! Þú græjar þetta á undir 5 mínútum, engin þörf á heimsókn frá tæknimanni.

Ráter sem má vera uppá borðum





Allt Heimilið dekkað með eero
eero ráterarnir vinna saman sem eitt þráðlaust net og TrueMesh finnur bestu leiðina fyrir sambandið. Færri dauðir blettir og rólegri unglingar. Stórt heimili eða þykkir steypuveggir? Þá gæti þurft fleiri eero rátera. Aðeins sá fyrsti þarf netsnúru. Hina seturðu bara í samband við rafmagn og sleppur við snúrulagnir á milli herbergja. Borvélin má hvíla sig.

Þú stýrir netinu með eero
Viltu láta okkur um að setja upp fyrir þig?
Viltu láta okkur sjá um tæknistússið? Bjóddu okkur þá í Snjallheimsókn, þar sem við förum yfir netið og búnaðinn og tengjum græjurnar. Við græjum þetta frá A til Ö.

Spurt og svarað
Finndu svör við algengustu spurningum um eero ráter hjá Nova.