Engin nettenging
Í Raufarhólshelli er eðlilega ekkert net- né farsímasamband og því þurfti að ferðast með allar græjur á staðinn og leggja inn í hellinn 400m langa ljósleiðaratengingu til að tryggja háhraða nettengingu.

Fenris Creations
“Hvernig streymum við tölvuleik í rauntíma neðan úr helli djúpt neðanjarðar?” er spurning sem við hjálpuðum Fenrir Creations að svara þegar þau frumsýndu nýja viðbót í beinni útsendingu í Raufarhólshelli.
VIÐSKIPTAVINUR
Fenris Creations
VERKEFNI
Catalyst frumsýning
STAÐSETNING
Raufarhólshellir, Ísland
ÁR
2025
Fenris Creations leitaði til okkar með eitt skemmtilegasta verkefni sem hefur ratað á borð til okkar! Frumsýning á EVE Online Catalyst leikjaviðbótinni í þráðbeinu streymi frá Raufarhólshelli! Raufarhólshellir er stútfullur af stórbrotinni náttúrufegurð, en það er ekki sérlega margt um innviði fyrir verkefni af þessu tagi né þessari stærðargráðu. Þannig, til að tryggja hraða og stöðuga tengingu settum við okkar helstu sérfræðinga í málið til að skoða hvernig hægt væri að leysa málið svo tugþúsundir um allan heim gætu fylgst með frumsýningu Catalyst í rauntíma!

Er hægt að streyma tölvuleik í rauntíma úr helli 400 metra neðanjarðar þar sem ekkert samband er til staðar? Svarið er já! Raufarhólshellir býður upp á stórbrotna náttúru en ekkert fjarskiptasamband. Þegar frumsýna átti EVE Online Catalyst í beinni útsendingu þurfti að hugsa allt frá grunni. Nova lagði 400 metra ljósleiðara inn í hellinn og kom á traustri tengingu við krefjandi aðstæður. Niðurstaðan var hnökralaust frumsýning í beinu streymi til áhorfenda um allan heim.

ÞJÓNUSTA
Verkefnið átti sér enga augljósa fyrirmynd. Ekkert sambærilegt hafði verið gert hérlendis og því var engin fyrirfram skilgreind leið til að fylgja. Það þurfti að hugsa allt frá grunni: hvernig væri hægt að koma stöðugu netsambandi inn í helli, án þess að raska upplifuninni, umhverfinu eða öryggi gesta?
Use left and right arrow keys to move through the user story carousel. Use Home and End to jump to the start or end.
Nova lagði 400 metra ljósleiðaratengingu inn í Raufarhólshelli svo hægt væri að senda viðburðinn út í beinni og spila EVE Online í rauntíma úr hellinum. Lausnin þurfti að vera örugg og stöðug án þess að raska upplifuninni, umhverfinu eða öryggi gesta.

Samstarfið gerði Fenris kleift að frumsýna EVE Online Catalyst með eftirminnilegum hætti úr einu stórbrotnasta umhverfi landsins. Áhorfendur sáu streymi úr helli, spilararnir upplifðu leikinn í rauntíma og tæknin gerði augnablikið mögulegt án þess að stela senunni. Þegar hugmyndin er að streyma tölvuleik í beinni úr iðrum jarðar þarf tengingin einfaldlega að virka. Nova hjálpaði Fenris að tryggja að augnablikið kæmist alla leið til áhorfenda.

400 M
Ljósleiðari lagður inn í hellinn
20+
Tæki sett upp neðanjarðar
50k+
Áhorfendur í beinni á Twitch
1.
Bein útsending úr helli á Íslandi

Viðbótin Catalyst er að miklu leyti afturhvarf til uppruna EVE Online. Okkur fannst því við hæfa að frumsýna leikinn í "hraunstreymi" úr iðrum jarðar í mögnuðu umhverfi Raufarhólshellis
Kristján Einar Kristjánsson
Viðburðar- og útsendingarstjóri, Fenris Creations