Skip to main content

BRUNAÐ UM BORGINA HNÖKRALAUST

Hvernig Hopp ræsir út 3000 skútur samtímis

„Við treystum á að skúturnar, símkortin, 5G-netið og appið vinni hnökralaust saman. Rauntímatenging er lykilatriði; ef hún dettur út rofnar allt samband. Þá verður upplifun viðskiptavina neikvæð og erfið.“

Viðskiptavinur

Hopp

Verkefni

Snjallar samgöngur

STAÐSETNING

Ísland

ÁR

2019

TÆKNIN BÝR AÐ BAKI UPPLIFUNINNAR

Frelsið er yndislegt

5G netið frá Nova styður við snjalla rafskútuþjónustu. Hopp snýst ekki bara um rafskútur. Hopp snýst um frelsi til að komast á milli staða á einfaldan og sveigjanlegan hátt. Hvort sem fólk er að skjótast á fund, í skólann eða heim, þá á ferðin að byrja án vesens. Til þess þarf tæknin að baki þjónustunni að virka hratt og örugglega, helst án þess að notandinn hugsi nokkuð um hana.

Frelsið er yndislegt
Viðskiptavinasaga

Með vindinn í hárinu

Bestu tæknilausnirnar eru þær sem þú tekur ekki eftir. Þegar þú stekkur á Hoppskútu og leggur af stað sér Nova um að tengingin virki hnökralaust fyrir sig. Með 5G netkortum og áreiðanlegri tengingu hjá Nova getur Hopp einbeitt sér að því sem skiptir máli, að veita notendum frelsi til að ferðast á einfaldan og sjálfbæran máta!

Hopp áskorun
ÁSKORUNIN

Þúsundir notenda. Upplýsingar í rauntíma. Ekkert þol fyrir bið.

Rauntímastaða

Í rafskútuleigu skipta rauntímaupplýsingar öllu máli. Notandinn þarf að sjá hvar næsta skúta er, aflæsa henni í appinu og leggja strax af stað. Í deilihagkerfi skipta sekúndur máli og enginn vill bíða eftir að „talað sé við skýið“.

Mikið álag á kerfið

Þjónustan þarf að geta staðið undir miklu álagi þegar þúsundir notenda eru á ferðinni samtímis. Kerfið verður að svara hratt og áreiðanlega, jafnvel á álagstímum þegar eftirspurn er mest.

Hröð og nákvæm virkni

Nákvæm staðsetning er lykilatriði svo skútan birtist á réttum stað á kortinu. Jafnframt þarf upplifunin að vera hnökralaus og hröð þannig að notandi geti hafið ferð án óþarfa biðar eða tafa.

LAUSNIN

Öflug tenging að baki hverrar ferðar

Nova styður við tæknilega grunninn í þjónustu Hopp með öflugri farsímatengingu og 5G sem hjálpar til við að halda flotanum tengdum. Með stöðugri tengingu verða samskiptin á milli appsins, skútunnar og kerfanna að baki þjónustunni einfaldari og hraðari fyrir notandann. Markmiðið er að tæknin trufli ekki ferðina. Hún á bara að virka.

Öflug tenging að baki hverrar ferðar
ÁRANGURINN

Samstarf sem einfaldar ferðalagið

Samstarfið gerir Hopp kleift að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli að hjálpa fólki að komast á milli staða á einfaldan, sveigjanlegan og umhverfisvænan hátt. Fyrir notandann á upplifunin að vera einföld. Hann finnur skútuna, opnar hana og heldur áfram með daginn.

Samstarf sem einfaldar ferðalagið

3000

Rafskútur tengdar við net Nova

Rauntími

Tenging milli apps, skúta og kerfa

24/7

Floti í stöðugu sambandi

5G

Styður við hraða og áreiðanleika

Kristín Hrefna Halldórsdóttir
„Besta tengingin er sú sem notandinn þarf ekki að pæla í. Hann finnur skútuna, opnar hana og leggur af stað. Nova hjálpar okkur að tryggja að sú upplifun virki eins og hún á að gera.“

Kristín Hrefna Halldórsdóttir

Framkvæmdarstjóri Hopp