Mörg að spila samtímis
Tryggja stöðuga tengingu fyrir marga spilara samtímis

NET Á LJÓSHRAÐA
Hvernig öflug nettenging frá Nova tryggir fyrsta flokks keppnisspilun í heimsklassa rafíþróttamiðstöð
Next Level Gaming opnaði rafíþróttamiðstöð í Egilshöll með það að markmiði að bjóða upp á leikjaaðstöðu fyrir bæði keppnislið og áhugaspilara. Til að tryggja bestu mögulega upplifun spilara þarf hraða og öfluga nettengingu sem þolir mikið álag. Nova var lykilaðili í að tryggja að tæknigrunnurinn væri til staðar og að hann studdi metnaðarfulla framtíðarsýn Next Level Gaming.

Í rafíþróttum skiptir hver millisekúnda máli. Þegar margir spilarar eru tengdir samtímis má ekkert hiksta, ekkert lagg og engar tafir koma í veg fyrir upplifunina. Með öflugri nettengingu frá Nova getur Next Level Gaming einbeitt sér að því að bjóða spilurum upp á fyrsta flokks upplifun og aðstöðu á heimsmælikvarða.

Nova útvegaði öfluga háhraða nettengingu sem knýr alla starfsemi miðstöðvarinnar. Tengingin gerir leikurum kleift að spila án tafa og tryggir að aðstaðan uppfylli þær kröfur sem gerðar eru til rafíþrótta. Við uppbyggingu miðstöðvarinnar var lögð áhersla á að skapa umhverfi þar sem spilarar geta komið saman, æft sig og keppt við bestu mögulegu aðstæður. Til að það markmið næðist þurfti nettengingin að vera áreiðanleg og stöðug, enda ein af grunnforsendum góðrar leikjaupplifunar.

Með lausn Nova getur Next Level Gaming boðið upp á stöðuga og hraða leikjaupplifun fyrir bæði daglega gesti og rafíþróttaviðburði. Í rafíþróttum er lykilatriði að nettengingin sé áreiðanleg og ósýnileg notendum, þannig að hún verði ekki þáttur sem hefur áhrif á upplifun eða frammistöðu. Markmiðið var að tryggja að spilarar upplifðu ekkert lagg og gætu treyst því að tengingin virkaði ávallt hnökralaust.

50
Leikjatölvur á staðnum
24/7
Tenging sem heldur leiknum gangandi
0
Pláss fyrir lagg
10 GB
Hraði á sekútu

Við þurftum samstarfsaðila sem við getum treyst og skilja hvað netið er mikilvægt í okkar starfi. Það hefur allt klikkað hjá okkur nema Internetið, þannig stöðuleikinn er svo sannarlega til staðar
Þórir Viðarsson
Framkvæmdarstjóri Next Level Gaming