þjónustan þarf að virka strax
Fólk sinnir fjármálum sínum á öllum tímum dags og notar kortin sín víða um heim. Þegar kemur að greiðslum er lítið svigrúm fyrir bið. Kortið þarf að virka þegar viðskiptavinurinn ætlar að nota það. Fyrir Indó þýðir það miklar kröfur til þeirra stafrænu innviða og þjónustuaðila sem starfsemin byggir á.





