Folf diskó­sett

Folftímabilið er byrjað, gríptu með þér fljúgandi furðuhlut og folfaðu yfir þig. Í Folf diskósettinu eru þrír diskar. Folf settið er komið í nýjan og flottan búning. 

Driver ( Konfetti ) - fyrir þá sem vilja kasta endalaust langt.
Midrange ( Glimmer ) - frábær alhliða diskur sem virkar vel í flestum köstum.
Pútter ( Diskó )- þungur diskur sem þú notar á lokametrunum.

PDGA samþykktar diskar.

Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!

Folf diskósett