Iceland Eclipse Festival 2026
Skemmtu þér! Iceland Eclipse Festival býður 2 fyrir 1 af almennu miðaverði á hátíðina sem verður haldin dagana 12. - 15. ágúst 2026.
Smelltu á Sækja tilboð og og þú færð afsláttarkóða sendan í SMS. Þú bókar miðana á heimasíðu hátíðarinnar en til að virkja tilboðið þarftu að setja inn afsláttarkóðann. Góða skemmtun!
Iceland Eclipse Festival kynnir fyrstu nöfn – Menningarhátíð undir almyrkva sólar á Hellissandi 2026
Dagana 12.–15. ágúst 2026 fer fram ný fjögurra daga tónlistar- og fræðihátíð á Hellissandi á Snæfellsnesi. Hátíðin hefst á einstökum náttúruviðburði þegar almyrkvi sólar verður kl. 17:47 þann 12. ágúst – viðburður sem endurtekur sig ekki á Íslandi fyrr en árið 2196.
Á svið hátíðarinnar stíga bæði alþjóðlegir og íslenskir listamenn, þar á meðal Meduza, Berlioz, GusGus, Emilíana Torrini, Booka Shade, Vök, Zero 7, Dave Clarke, Exos, Nightmares on Wax, Ryan Crosson, Shaun Reeves, Ásgeir, Daði Freyr, gugusar og Hjálmar.
Fyrirlesarar og gestir koma frá ýmsum sviðum, þar á meðal geimferðum, vísindum, tækni og nýsköpun. Meðal þeirra eru geimfarar frá NASA, ESA, SpaceX, Blue Origin, Space for Humanity og Virgin Galactic, auk fulltrúa frá Sameinuðu þjóðunum, Citizens Foundation, Eden Foundation, Mama Reykjavík og ReWilding Iceland.
Hátíðin leggur einnig áherslu á „connect“ – dagskrárliði sem tengja fólk saman í gegnum jóga, hugleiðslu, athafnir, náttúrutengingu og sameiginlegar upplifanir. Í samstarfi við alþjóðlega verkefnið Cosmic Pineapple verður boðið upp á jörðuð og skapandi rými með jóga, tónheilun, athöfnum við eldinn, visku íslenskra og erlendra leiðbeinenda og slökunarsvæði með tónlist og listum í boði Mama Reykjavík. Markmiðið er að skapa rými þar sem gestir geta slakað á, hist, tengst og deilt reynslu í afslöppuðu og opnu andrúmslofti.
