Skip to main content

NOVA x NORWAVES x VEGAGERÐIN

Hvernig Nova greinir umferðarmynstur með nýjustu 5G-tækni

Ný 5G SA tækni er nýtt til að streyma hágæðamyndefni af umferð í rauntíma og greina umferðarmynstur með gervigreind.

5G SA

Standalone tækni: Fyrsta fyrirtækið á Íslandi

HD

Rauntímastreymi: Hágæða myndefni af umferð

AI

Gervigreind: Sjálfvirk greining mynstra

IoT

Stórskala tengingar: Fjöldi skynjara og tækja

NÝR TÆKNIINNVIÐUR

Ekki bara hraðar net, heldur nýr tæknilegur innviður með tilkomu 5G SA

Mikil uppbygging hefur átt sér stað á 5G-netum á Íslandi undanfarin ár og innleiðing 5G SA (Standalone) markar mikilvægt framfaraskref í þróun fjarskiptainnviða landsins. Tæknin eykur sveigjanleika netsins verulega og gerir kleift að aðgreina netþjónustu eftir mismunandi þörfum notenda og þjónusta. Jafnframt opnar 5G SA fyrir stórskala IoT-lausnir sem gera mögulegt að tengja saman mikinn fjölda tækja og skynjara á skilvirkan og öruggan hátt. Með þessari þróun verður 5G ekki aðeins hraðara farsímanet heldur öflugur tæknilegur innviður sem styður við nýsköpun, sjálfvirknivæðingu og stafræna umbreytingu í fjölmörgum atvinnugreinum.

Ekki bara hraðar net, heldur nýr tæknilegur innviður með tilkomu 5G SA
5G myndavélar á gatnamótum

Augun á veginum

Nova, í samstarfi við Norwaves, Rafal og Vegagerðina, hefur sett upp 5G-myndavélar utanhúss í tilraunaskyni. Myndavélarnar nýta tryggða bandvídd og forgang yfir 5G SA-kerfi Nova. Þær streyma hágæðamyndefni af umferð á völdum gatnamótum í rauntíma — án þess að treysta á stöðuga mannlega vöktun eða tafarlaus handvirk viðbrögð.

Augun á veginum
Snjallari sýn

Gervigreind greinir umferðarmynstur

Með gögnum úr myndavélunum er hægt að greina umferðamynstur með hjálp gervigreindar og leggja mat á aðstæður sjálfvirkt. Markmiðið er að sýna fram á hagnýtingu nýrrar tækni. Sambærileg notkunartilvik eru þegar farin af stað víða erlendis, til að mynda í heilbrigðisþjónustu, flutningum og landbúnaði.

Gervigreind greinir umferðarmynstur