Skilmálar

Nova appið persónu­vernd­ar­stefna

Nova appið er smáforrit þar sem viðskiptavinir Nova geta keypt vörur og þjónustu, nýtt sér sérstök tilboð hjá völdum samstarfsaðilum, fengið Frítt stöff, nálgast miða sem keyptir eru í gegnum Tix.is, skoðað yfirlit yfir notkun sína á fjarskiptaþjónustu Nova, fyllt á frelsið, valið þjónustuleiðir o.fl.

Öðrum en viðskiptavinum Nova er einnig heimilt að nýta sér Nova appið t.d. til að koma í viðskipti við Nova eða nýta sér appið til að halda utan um miða sem keyptir eru á Tix.is.

Nova hf., Lágmúla 9, 108, Reykjavík, er ábyrgðaraðili við vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við notkun á Nova appinu.

Ítarlegri upplýsingar um vinnslu persónuupplýsinga hjá Nova má nálgast hér.

Hvaða persónuupplýsingar er verið vinna?

Við skráningu þarftu að gefa upp nafn og netfang, fleira þarf ekki til að geta nýtt sér þjónustuna.

Við kaup á þjónustu þarf að gefa upp greiðslukortanúmer. Þá geta þeir sem eru í fjarskiptaþjónustu hjá Nova með farsíma, net og heimasíma, nálgast upplýsingar um notkun sína og greiðslustöðu.

Hver er tilgangur vinnslunnar?

Tilgangur vinnslu persónuupplýsinga er að veita notendum aðgengi að þjónustu Nova á einfaldan og þægilegan hátt þar sem allt er á einum stað.

Miðlun persónuupplýsinga

Persónuupplýsingum um þig kann að vera miðlað til samstarfsaðila Nova sé það nauðsynlegt til að þú getir nýtt þér tilboð sem bjóðast viðskiptavinum Nova eða eru veitt í samstarfi við Nova. Þá miðlar TIX.is upplýsingum um miðakaup þín til Nova kjósir þú að fá miðann þinn í Nova appið.

Vinnsluheimild

Vinnsla þeirra persónuupplýsinga sem nauðsynleg er vegna notkunar í Nova appinu byggir á samningi við þig sem notanda, við þurfum vissar upplýsingar til að þú getir nýtt þér Nova appið.

Þá eru upplýsingar um notkun þína á þjónustunni einnig nýttar til að bjóða þér tilboð á tengdum vörum og þjónustu hjá Nova og eru það lögmætir hagsmunir Nova að geta bætt þjónustu sína við þig.

Öryggi persónuupplýsinga

Við þróun og rekstur kerfisins hefur verið gripið til viðeigandi ráðstafana til að tryggja að gögn komist ekki í hendur óviðkomandi, þeim verði ekki breytt, þau eyðilögð eða að þau tapist.

Þín réttindi

Þú átt rétt á að fá upplýsingar um þau gögn sem vistuð eru vegna notkunar á Nova appinu, ásamt því að fá afhent eintak af slíkum gögnum.

Þú átt rétt á að fara fram á að rangar persónuupplýsingar séu leiðréttar og að upplýsingum sé eytt. Þú átt einnig rétt á því að mótmæla vinnslu persónuupplýsinga og óska eftir því að vinnsla þeirra sé takmörkuð. Þú átt einnig rétt á að fara fram á að fá persónuupplýsingar þínar afhentar á tölvutæki formi, eða þær verði fluttar beint til þriðja aðila.

Hægt er að hafa samband við persónuverndarteymi Nova með tölvupósti á GDPR@nova.is óskir þú eftir að nýta einhver af réttindum þínum, viljir frekari upplýsingum um vinnslu persónuupplýsinga eða til að koma á framfæri ábendingum sem varða hana.

Teljir þú að vinnsla persónuupplýsinga sé ekki í samræmi við þau lög sem um hana gilda getur þú sent erindi til Persónuverndar.