Bluetooth FM sendir fyrir bíla
Baseus S-09 Pro færir Bluetooth í bílinn á einfaldan hátt. Tengdu símann við sendinn og spilaðu tónlist, hlaðvörp eða annað hljóð í gegnum útvarp bílsins. Innbyggður hljóðnemi gerir þér einnig kleift að svara símtölum án þess að taka upp símann.
Sendirinn er jafnframt bílahleðslutæki með hraðhleðslu og skýrum LED skjá sem sýnir meðal annars FM tíðni. Þægileg lausn fyrir bíla sem eru ekki með Bluetooth innbyggt.
- Bluetooth 5.3
- FM-tíðni: 87,5–108 MHz
- USB-C PD hraðhleðsla, allt að 18 W
- Innbyggður hljóðnemi fyrir handfrjáls símtöl
- Styður USB-lykil og TF minniskort allt að 128 GB
- LED-skjár sýnir FM-tíðni
