Flip 7
Snúðu við spilum, einu í einu, en passaðu þig að fá ekki sömu töluna tvisvar! Flip 7 er hraðskreitt og spennandi partýspil þar sem þú ræður hvort þú tekur stigin þín eða tekur áhættuna og ferð alla leið.
Sérstök spil gefa aukastig, annað tækifæri eða frysta mótspilara, og ef þú nærð sjö spilum í röð færðu bónus. Einfalt að læra, erfitt að hætta.
- 3 eða fleiri leikmenn
- 8 ára og eldri
- Um 20 mínútur
