Galaxy Fold5
- 50/12/12 MP bakmyndavélar
- 10/4 MP fram myndavélar
- Snapdragon 8 - 2.gen örgjörvi
- 4.400 mAh rafhlaða
- Gorilla glass Victus 2
- Armor Aluminium rammi
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Litir

Veldu stærð
Skoðaðu hvernig þú getur dreift greiðslunum
2 Greiðslur
Frá167.836 kr. / mán
Farsími eða spjaldtölva?
Samsung Galaxy Z Fold 5 er fyrir þau sem vilja risavaxinn skjá. Síminn er með 6,2“ skjá sem stækkar svo upp í 7,6“ þegar þú opnar hann! Tilvalið þegar þú þarft að vinna í nokkrum forritum í einu, fylgjast með leiknum eða spila tölvuleiki.

Segðu sís!
Þessi farsími er sannkölluð myndavélaparadís. Þú getur valið á milli 50 megapixla myndavélar, 12 megapixla víðlinsu, og 10 megapixla linsu. Það er líka 3x aðdráttur og 30x Space Zoom sem kemur þér nánast á tunglið. Það eru myndavélar á hverjum skjá svo það skiptir ekki máli hvort síminn sé opinn eða lokaður þegar þú tekur myndsímtöl eða tekur myndir.

Stór og sterkur!
Samsung Galaxy Z Fold5 er með 4400 mAh rafhlöðu sem dugir í allta að 73 klukkutíma þegar þú hlustar á tónlist og 21 klukkutíma í stanslausu glápi. Hann styður hraðhleðslu og svo getur þú líka notað hann til að hlaða önnur tæki þráðlaust. Síminn er IPX8 vatnsvarinn, með Gorilla Glass Victus 2 gleri á yfirskjánum og með ramma úr mjög sterku áli.

Endurgræddu meira!
Áttu gamlan síma ofaní skúffu? Komdu með gamla símann til okkar og þú færð inneign upp í nýju græjuna! Við bara elskum að Endurgræða!
