Garmin Approach S50
Garmin Approach S50 er fullkominn leikfélagi fyrir golfarann sem vill taka upplýstari ákvarðanir á vellinum og hafa stílinn í lagi á sama tíma. Úrið sýnir þér það sem skiptir máli, hjálpar þér að lesa völlinn betur og heldur utan um leikinn án þess að flækja hlutina.
Þegar golfpokinn fer inn í bílskúr heldur S50 áfram að vinna með þér. Úrið fylgist með heilsu, svefni og hreyfingu, birtir tilkynningar úr símanum og styður Garmin Pay, svo þú ert með bæði golfhjálpina og snjallúrið á úlnliðnum allan daginn. Með Garmin Approach getur þú einnig skráð aðrar æfingar eins og hlaup, göngur, hjól, styrktaræfingar og jóga!
- 1,2" AMOLED snertiskjár
- Yfir 43.000 forhlaðnir golfvellir
- GPS, GLONASS og Galileo staðsetningartækni
- Allt að 10 daga rafhlöðuending í snjallúrsstillingu
- Allt að 15 klst. rafhlöðuending með GPS
- Garmin AutoShot
- Garmin Pay til að borga með úrinu
- 5 ATM vatnsvörn
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
Litir
