Super Decoder Þrautapúsl
GiiKER Super Decoder er snjall og spennandi þrautaleikur sem leyfir þínum innri rannsóknarlögreglumanni að spreyta sig á að brjóta leynikóða. Með hverju giski færðu vísbendingar sem færa þig nær lausninni, þannig að leikurinn verður bæði spennandi og ótrúlega ávanabindandi.
Leikurinn sameinar skemmtun og rökhugsun á frábæran hátt, hvort sem spilað er einn eða með öðrum. Super Decoder er nettur og fyrirferðalítill, svo auðvelt er að kippa honum með í bílinn, í ferðalagið eða hafa við höndina heima.
- Markmiðið er að brjóta 4 lita leynikóða innan 7 tilrauna
- 100 borð í Easy Mode og 500 borð í Advanced Mode
- Hægt að spila í Solo Mode eða Duo Mode
- Handhæg stærð fyrir skemmtun í ferðalaginu!
- Hentar fyrir 5 ára og eldri
- BPA-frítt og eiturefnalaust ABS plast
- Notar 2 x AA rafhlöður (fylgja ekki)
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
