Super Blocks Þrauta­púsl

GiiKER Super Blocks er snjallt púsluspil sem breytir leikstund í litríka þrautaveislu. Þú færð að raða formum, prófa þig áfram og sjá verkefnin lifna við á ljósaborðinu sem gerir leikinn bæði spennandi og grípandi frá fyrstu mínútu. Ávanabindandi og skemmtilegur leikur sem reynir á heilann!

Hér fer saman skemmtun og lærdómur á einstaklega náttúrulegan hátt. Super Blocks hentar vel fyrir litlar hendur, hjálpar til við að þjálfa rýmisgreind, mynsturgreiningu og fínhreyfingar, og heldur krökkum og fullorðnum uppteknum án skjás. Frábær kostur í ferðalagið, í rólega stund heima eða sem gjöf sem vekur bæði forvitni og keppnisskap.

  • 1000+ þrautir með stigvaxandi erfiðleikastigi
  • 16 mismunandi kubbaform og 4 litir
  • Ljósaborð með 64 ljósapunktum
  • Learn Mode með lausnum þegar leikurinn flækist
  • Hentar fyrir 4 ára og eldri
  • Framleitt úr BPA-fríu, óeitruðu ABS plasti
  • Notar 2 x AA rafhlöður (fylgja ekki)

Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!

Lagerstaða

Super Blocks Þrautapúsl