Mi Android TV tilboð
Þú borgar 1.690 kr. á mánuði í 6 mánuði fyrir Mi Android TV og færð á móti sömu upphæð í afslátt af ótakmörkuðum Ljósleiðara í 6 mánuði - Þú borgar því í raun ekki neitt fyrir græjuna!
Mi Android TV
Með Mi Android TV ert þú þinn eigin dagskrárstjóri með aðgang að nýjum bíómyndum, sjónvarpsþáttum, íþróttum, allskonar öppum og leikjum.
Nú er hægt að losa sig við gamla myndlykilinn því Nova TV hefur að geyma allar opnu íslensku stöðvarnar á einum stað.
Mi Box er einstaklega auðvelt í uppsetningu, þú einfaldlega stingur því í samband við rafmagn og tengir það við sjónvarpið.

Stærð
Skoðaðu hvernig þú getur dreift greiðslunum
2 Greiðslur
Frá6.569 kr. / mán
Stútfullt box
Mii Box S kemur uppsett með Android TV 8.1 sem býður uppá ótal möguleika eins og Google Assistance, Chromecast og Google búðina. Horfðu á allar uppáhalds streymisveiturnar þínar eins og Nova TV og Netflix, spilaðu tónlist af Spotify og YouTube eða sæktu þér leiki og önnur smáforrit í Google búðinni. Þú getur notað röddina til að leita af nýju efni og stýrikerfið aðstoðar þig með því að sýna þér nýtt og áhugavert efni, sérsniðið þér.

Kastaðu því upp
Mi Box er með innbyggðu Chromecasti svo þú getur varpað uppáhalds þáttunum þínum, bíómyndum og öðru efni uppá sjónvarpsskjáinn beint úr tölvunni, símanum eða spjaldtölvunni.

Talaðu við það
Google Assistant aðstoðar þig við að stýra sjónvarpinu og öðrum snjalltækjum á heimilinu með einum takka. Spurðu spurninga, uppgötvaðu nýtt efni til að glápa á eða spilaðu uppáhalds lagið þitt með röddinni einni.

Öflugur sambýlingur
Mi Box S styður 4k Ultra HD upplausn og nýjast HDR staðalinn þannig þú færð skarpa mynd og bjarta og lifandi liti. Inní boxinu er öflugur örgjörvi sem gerir þér kleift að nota mörg forrit í einu og spila nýjustu leikina snurðulaust.
