Radiant útileguljós & hleðslubanki
Nite Ize Radiant RL3 PowerSwitch er endurhlaðanlegt útileguljós sem lýsir upp kvöldið hvort sem þú ert í tjaldinu, sumarbústaðnum eða garðpartýinu. Það er bjart, sterkbyggt og einfalt í notkun, og virkar einnig sem hleðslubanki fyrir símann!
Ljósið er með nokkrum birtustillingum, allt frá öflugri lýsingu yfir í kósýljós sem skapar notalega stemningu. Innbyggt USB-C tengi til að hlaða ljósið eða önnur tæki og PowerSwitch rafhlöðuhólf sem lengir notkunina með AA-rafhlöðum þegar hleðslan klárast.
- Allt að 500 lúmen birta
- Endurhlaðanleg rafhlaða
- USB-C tengi til að hlaða tækin þín
- 4 hvítar ljósstillingar og 2 hlýrri stillingar
- Amber flicker stilling sem líkir eftir kertaljósi
- PowerSwitch stuðningur fyrir 3 AA-rafhlöður
- Vatnsvarið IPX4
