Mino ferðakaffivél
Outin Mino ferðakaffivélin gerir þér kleift að njóta rjúkandi alvöru espresso kaffibolla hvar og hvenær sem er! Vélin er nett, létt og hönnuð fyrir þá sem vilja gott kaffi á ferðinni, hvort sem það er í bílnum, útilegunni, göngunni, bústaðnum eða vinnunni. Outin Mino býður upp á að nota bæði kaffihylki eða malað kaffi, svo þú velur það sem hentar best hverju sinni, hún er með lengri rafhlöðuendingu, hraðhleðslu, meiri þrýsing, er hraðari að hitna og er með betri vatnsvörn en ódýrari útgáfan.
Fullkomin græja fyrir kaffiunnendur sem vilja alvöru kaffi á ferðinni!
- 22 bar þrýstingur
- Styður bæði hylki og malað kaffi
- 9000 mAh endurhlaðanleg rafhlaða, sem nægir til að hita og brugga allt að 6 bolla úr herbergisheitu vatni eða yfir 500 bolla ef notað er heitt vatn í vélina.
- USB-C hraðhleðsla, full hleðsla á 90 mínútum.
- Hitar 50 ml af vatni í 93,3°C á um 149 sekúndum
- IP67 vörn gegn ryki og vatnsskvettum, frábær fyrir íslenskt veðurfar!
- 70 ml vatnstankur
- Vélin vegur 685 gr.
Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!
Lagerstaða
Litir
