Tap Out hnappur

Er síminn að stela athygli þinni og tíma - þarftu að kúpla þig út?

Tap Out hnappurinn er snjallt verkfæri til að takmarka skjátíma og draga úr truflunum frá athyglisþjófum eins og TikTok, Instagram, Facebook, fréttaveitum og símaleikjum.

Þú sækir Tap Out appið og getur valið hvaða forrit og vefsíður þú vilt loka fyrir og til að opna þau aftur verður þú að fara og „tappa“ símann á Tap Out hnappinn sjálfan.

Þessi þröskuldur hjálpar okkur við að grípa síður í snjalltækið og falla aftur í hugsanalausan skjátíma og "doom-scrolling". Tap Out hjálpar þér að halda fókus, klára verkefni, sofa betur og lifa meira í núinu. Tækið er lítið, einfalt í notkun og virkar bæði með iOS og Android símum.

  • Hnappurinn er með segli svo hægt er að festa hann á ísskápinn.
  • Appið telur hversu margar klukkustundir þú hefur "tappað út".
  • Þú getur tímastillt hvað þú vilt "tappa út" lengi, en getur alltaf opnað á öppin aftur með því að "tappa" símanum á hnappinn.
  • Margir notendur geta notað sama hnapp, svo hann hentar vel á heimilið eða vinnustaðinn.
  • Hnappurinn er með innbyggðri NFC tækni sem talar við símann þinn.

Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!

Lagerstaða

Tap Out hnappur