Wonlex CT24 krakkaúr
Wonlex CT24 er krakkaúr með 4G sem gerir barninu kleift að hringja og svara símtölum án þess að vera með síma. Foreldrar sjá hvar úrið er statt í appi og fá viðvörun ef það fer út fyrir öryggissvæði sem þeir hafa sjálfir valið.
Ef eitthvað kemur upp á heldur barnið fjölnotahnappinum inni í þrjár sekúndur og úrið hringir sjálfkrafa SOS-símtal í númer sem foreldri hefur stillt. Engin myndavél er í úrinu og öllum helstu stillingum er stýrt úr síma foreldra.
Úrið er nett, situr vel á litlum úlnlið og þolir rigningu, svita og hversdagsleg ævintýri. Skrefamælir, svefnmælir og stærðfræðileikur fylgja með. Úrið þarf Nano-SIM-kort með símaáskrift.
- 4G símtöl og SOS-hnappur
- Staðsetning með GPS, LBS og WiFi
- Öryggissvæði og ferðasaga dagsins
- 1,52" lita snertiskjár
- IP67 vatnsvörn (ekki fyrir sund, heita potta eða gufu)
- Engin myndavél
- Foreldraapp fyrir iOS og Android
Litir
14.990 kr.

Skoðaðu hvernig þú getur dreift greiðslunum
2 Greiðslur
Frá7.680 kr. / mán
Heildargreiðsla
15.360 kr.
ÁHK
44.06%