Super Slim Magnetic hleðslu­banki 5.000 mAh

Xiaomi Super Slim Magnetic hleðslubankinn er einstaklega nettur og festist með segli við símann og hleður hann þráðlaust á ferðinni. Hann er aðeins 8.7 mm á þykkt og liggur því vel að símanum án þess að vera fyrirferðarmikill í hendi eða vasa.

Hleðslubankinn styður allt að 15 W þráðlausa hleðslu og einnig hraðhleðslu með snúru. Með 5.000 mAh rafhlöðu er hann handhæg viðbót fyrir langa daga, ferðalög og þau augnablik þegar næsta innstunga er hvergi sjáanleg.

  • 5.000 mAh rafhlaða
  • Segulfesting fyrir þráðlausa hleðslu
  • Allt að 15 W þráðlaus hleðsla
  • Allt að 22.5 W hleðsla með snúru
  • Aðeins 8.7 mm á þykkt
  • 122 g að þyngd

Verslaðu allt sem þú vilt á netinu og við sendum heim til þín eða á næsta afhendingarstað Dropp. Þú getur líka valið að sækja í verslun Nova í Lágmúla og fengið þér kaffibolla þegar þú sækir nýja dótið þitt!

Lagerstaða

Super Slim Magnetic hleðslubanki 5.000 mAh