Dansgólfið

18. sept 2018

10 þúsund sinnum takk!

Við erum gríðarlega stolt, ánægð, hrærð og kát en fyrst og fremst þakklát fyrir það að nú eru 10 þúsund heimili í dúndrandi sambandi við Nova í gegnum hraðasta ljósleiðara á Íslandi. Markmið okkar er að eiga ánægðustu viðskiptavinina á hraðasta farsíma- og heimanetinu og því erum við í skýjunum með að hafa náð bæði 10 þúsund markinu í fjölda tengdra ljósleiðaraheimila og fengið viðurkenningu fyrir hraðasta farsímanetið og hraðasta ljósleiðarann á Íslandi annað árið í röð frá Ookla (Speedtest) núna í september.

Okkar skilaboð eru einföld, ekki vera risaeðla, ekki vera á hægu neti, ekki greiða fyrir heimasíma og ekki vera að greiða fyrir myndlykil. Vertu heldur frjáls eins og fuglinn, vertu á hraðasta netinu, notaðu snjallsímann fyrir alla símanotkun og afþreyingu og nýttu netið, Apple TV og Nova TV til að horfa á sjónvarpið.

Til ykkar allra sem eruð hætt að vera risaeðlur og komin með Ljósleiðara hjá Nova segjum við 10 þúsund sinnum takk!!