Dansgólfið

5. des 2018

Uppklapp #2 | GDRN

Söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN stígur á svið í Lágmúla 6.des kl. 20:30 á Uppklappi #2

GDRN er listakona vikunnar á Tónlistanum. Þar býður hún upp á sérsmíðaðan lagalista og svara skemmtilegum spurningum tengdum tónlist. Inni á Tónlistanum kynnir listafólk einnig sína vinatóna sem viðskiptavinir Nova geta sett upp hjá sér. Vinatónar eru tónar sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig.

Við fengum GDRN í heimsókn í vikunni og fengum hana til þess að segja okkur aðeins betur frá lögunum sem hún valdi á Tónlistanum.

Uppklapp er ný tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram, með nýjum og persónulegum hætti. Auk þess að flytja sína eigin tónlist sitja þau fyrir svörum og segja okkur meðal annars frá lögunum sem þau hafa valið inn á Tónlistann þá vikuna. Við fáum þannig að skyggnast inn í hugarheim ólíkra listamanna og kynnumst tónlistinni þeirra, um leið og við fáum að vita hvað veitir þeim innblástur og hver uppáhalds lögin þeirra eru.

Nova elskar tónlist af öllu hjarta og hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að rækta grasrótina hér heima. Allur ágóði af miðasölunni rennur til listamannsins hverju sinni sem og allar tekjur af sölu vinatóna. Með því að mæta í Lágmúlann eða að sækja þér vinatón leggur þú þitt af mörkum og styður við íslenska tónlist. Aðeins 100 miðar eru í boði hverju sinni.

Tryggðu þér miða hér á tix.is

Miðaverð kr. 1990

Miðaverð ef greitt er með Aur kr. 1490

Húsið opnar kl. 20:00 en tónleikar hefjast kl. 20:30.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Lágmúla!