Stærsta takk í heimi!
Viðskiptavinir Nova eru ánægðustu viðskiptavinirnir í farsímaþjónustu, 11. árið í röð samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar, sem veitt var á við hátíðlega athöfn á Grand Hótel. Nova fékk einkunnina 75.1 af 100 mögulegum sem skilaði Nova í 2. sæti í könnuninni þegar horft er til allra fyrirtækja á Íslandi sem könnunin nær til.
Íslenska ánægjuvogin er félag í eigu Stjórnvísi og framkvæmdin er í höndum Zenter rannsókna. Markmið verkefnisins er að láta fyrirtækjum í té mælingar á ánægju viðskiptavina en einnig öðrum þáttum sem hafa áhrif á hana s.s. ímynd, mat á gæðum og tryggð viðskiptavina. Nánari upplýsingar um Íslensku Ánægjuvogina má finna á stjornvisi.is
Við erum endalaust ánægð, stolt, hrærð og kát en fyrst og fremst þvílíkt þakklát ykkur fyrir að gefa okkur toppeinkunn í Íslensku ánægjuvoginni. Þið hvetjið okkur til að gera betur á hverjum degi. Ellefufalt húrra fyrir ykkur!
Nova appið er einnig besta farsímaappið á fjarskiptamarkaðnum samkvæmt rannsókn Zenter. Með ánægjuna að leiðarljósi höldum við áfram að bjóða bestu 2f1 tilboðin, Frítt stöff og endalaust besta dílinn hjá Nova.
Takk fyrir alla ánægjuna ellefu ár í röð! Smelltu þér í Nova appið og nældu þér í hoppandi hresst, endalaust ánægjulegt og gleðilegt stöff í Frítt stöff og 2 fyrir 1 tilboð í tilefni dagsins!
Við bjóðum alla velkomna á Stærsta skemmtistað í heimi og í hóp ánægðustu viðskiptavina á Íslandi! Upplifðu ánægjuna!