Dansgólfið

9. sept 2019

BRÍET | Upp­klapp Nova #7

Við bjóðum BRÍET velkomna á svið í Nova Lágmúla þann 11. september kl. 20:30 á Uppklappi Nova #7

Nova ❤️ tónlist!

BRÍET er listakona vikunnar á Tónlistanum. Þar fáum við að skyggnast inn í hugarheim hennar í gegnum sérsmíðaðan lagalista og tónlistartengdar spurningar. Fáðu innblástur að lögum til að hlusta á með fyrsta kaffibolla dagsins, fyrstu ástinni og þó þú sért í ástarsorg þá er BRÍET með lagið sem sigrar sorgina.

BRÍET kíkti í heimsókn og við fengum hana til þess að segja okkur aðeins betur frá lögunum sem hún valdi á Tónlistanum.

Hvernig fæ ég miða?

Tónleikagestir fá 2 fyrir 1 af drykkjum á Nova barnum.

Hvað er Uppklapp?

Uppklapp er tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram, með nýjum og persónulegum hætti. Auk þess að flytja sína eigin tónlist sitja þau fyrir svörum og segja okkur meðal annars frá lögunum sem þau hafa valið inn á Tónlistann þá vikuna. Við fáum þannig að skyggnast inn í hugarheim ólíkra listamanna og kynnumst tónlistinni þeirra, um leið og við fáum að vita hvað veitir þeim innblástur og hver uppáhalds lögin þeirra eru.

Nova ❤️ tónlist af öllu hjarta og hefur frá upphafi lagt mikið upp úr því að rækta grasrótina hér heima. Allur ágóði af miðasölunni rennur til listamannsins hverju sinni sem og allar tekjur af sölu vinatóna. Með því að mæta í Lágmúlann eða að sækja þér vinatón leggur þú þitt af mörkum og styður við íslenska tónlist.

Ekki vera feimin/n, náðu í miða í Nova appinu og dansaðu með okkur á miðvikudaginn.

Mynd af Stefanía Gunnarsdóttir
Stefanía Gunnarsdóttir
Markaðsfulltrúi