
NovaTV appið mun loka 1. júlí næstkomandi og þjónustuleiðin „Sjónvarpið hjá Nova“ taka við. Þar færðu 30% afslátt af íslenskum sjónvarpsáskriftum þegar þú ert með Heimanet hjá Nova.
Sjónvarpið hjá Nova virkar þá þannig að þú kaupir sjónvarpsáskriftina hjá Nova á 30% lægra verði og horfir á efnið í gegnum Sjónvarp Símans eða SÝN appið. Þetta er díll sem þú færð hvergi annars staðar! Besta deildin, Tónlistarmennirnir okkar, HBO eða risamótin í golfi? Þitt er valið!
NovaTV kom inn árið 2018 sem brautryðjandi á sínu sviði og bauð fólki upp á möguleikann á að horfa á sjónvarp án myndlykils. Með því umbreytti NovaTV íslenskum sjónvarpsmarkaði og svaraði kalli neytenda um að geta notið sjónvarpsefnis hvar sem er og hvenær sem er en ekki bara þar sem myndlykillinn var staðsettur.
Síðan þá hafa íslenskar streymisveitur þróað sín eigin öpp sem þær bjóða upp á í dag. Það er því óhætt að segja að NovaTV hafi lokið hlutverki sínu enda getur þú nú horft á opna dagskrá án endurgjalds eða keypt sjónvarpsáskriftir á betra verði hjá Nova.
Hjá Nova ert þú þinn eigin dagskrárstjóri og ræður hvaða streymisveitur þú parar við heimilispakkann þinn.
Frelsaðu fjarstýringuna og vertu með sjónvarpið hjá Nova á langbesta dílnum.