Enski boltinn hjá Síminn Sport með ótakmörkuðum ljósleiðara og Nova TV!

Þvílík fótboltaveisla. Ef þú ert með ótakmarkaðan Ljósleiðara hjá Nova þá getur þú farið inn á novatv.is og keypt áskrift að enska boltanum frá Síminn Sport fyrir litlar 2.500 krónur á mánuði út fótboltatímabilið.
Við erum svo ótrúlega spennt að geta gert sjónvarpsáhorfið auðveldara og ódýrara fyrir þig. Ertu með spurningar? Við getum labbað í gegnum þetta saman.
Ertu með ótakmarkaðan Ljósleiðara hjá Nova?
Já. Frábært! Þá getur þú farið rakleiðis inn á Nova TV, keypt áskrift og byrjað að horfa strax í dag.
Nei. Ekkert mál, ef þig langar í þennan magnaða díl þá getur þú pantað ótakmarkaðan Ljósleiðara hér og eftir það farið inn á novatv.is, keypt áskrift og byrjað að glápa!
Við viljum alls ekki skilja útundan Það eru mörg svæði á landinu sem ekki hafa möguleikann á Ljósleiðaratengingu, svo þeir sem eru með ótakmarkað 4.5G net hjá Nova fá að sjálfsögðu að vera með í fótboltaveislunni. Ótakmarkaðir 4.5G notendur geta þá skellt sér inn á novatv.is, keypt áskrift og byrjað fylgjast með boltanum.
Ertu kannski með netið hjá Nova en veist ekki hvort það sé ótakmarkað? Þú getur alltaf farið í Nova appið og séð hvaða áskriftarleið þú ert með.
Ef þú ert með fleiri spurningar þá gætirðu fundið svör við þeim á Spurt og svarað síðunni okkar en annars erum við alltaf til í að spjalla um boltann á netspjallinu og í þjónustuverinu í síma 519 1919.
Stöngin inn og gleðilegt gláp!