Nova einfaldar þér lífið!
Þegar þú kaupir miða á viðburð á Tix.is getur þú valið að fá miðann þinn sendann í Vasann í Nova appinu og það kostar ekki krónu! Það þarf ekki lengur að prenta út miða og muna eftir að taka þá með sér, eða gera dauðaleit í tölvupóstinum í símanum þegar þú mætir á tónleikastaðinn. Það er bara allt á sínum stað í Vasanum.
Það geta allir sótt Nova appið og geymt miðann sinn í Vasanum. Það skiptir engu máli hjá hvaða farsímafyrirtæki þú ert, hvað þú kaust í forsetakosningunum, hvort þú elskar ananas á pítsu eða með hvaða liði þú heldur með í enska boltanum. Nova appið er barasta fyrir alla.
Skrefin:
- Sæktu Nova appið í App Store eða Play Store fyrir iOS og Android tæki.
- Veldu innskráningu og sláðu inn símanúmerið þitt.
- Hinkraðu eftir að fá kóðann sendan til þín í SMS. Sláðu hann svo inn.
- Á forsíðu velur þú einfaldlega Vasann í slánni neðst á skjánum.
- Hér sérð þú svo alla miða og kort sem þú átt í Vasanum á símanúmerinu þínu!