Dansgólfið

3. nóv 2020

Góð ráð fyrir snúslús

Vertu á staðnum

Notaðu netið. Nýttu þér snjalltækin. Þau eiga að einfalda lífið, en áttu ekki að taka það yfir. Finndu þitt jafnvægi, taktu skjáhvíld við og við og upplifðu fullkomið sím–zen.

Sefur síminn uppí?

Svefn er mikilvægur fyrir heilsuna og við mælum með að þú venjir snjalltækin strax á að sofa ekki uppí. Það er til dæmis gott ráð að fá sér vekjaraklukku og skilja símann eftir frammi. Þá er ekkert ping eða önnur hljóð sem trufla næturblundinn og engar samfélagsmiðla freistingar sem lokka þig.

Snjallar stillingar

Eins og það er gaman að skoða skjáinn þá er skjábirtan ekki sú besta þegar kemur að hágæða svefni. Bláa skjábirtan ruglar í svefnhormónum sem undirbúa okkur undir það að sofa eins og Þyrnirós. En það eru til snjallar stillingar í símanum sem fjarlægja bláu birtuna.

  • iPhone Þú ferð í Settings og svo í Display & Brightness. Þar getur þú stillt á Night Shift og ráðið því klukkan hvað bláa birtan hverfur úr símanum.
  • Android Þú smellir þér inn í Settings og svo í Display. Þar sérðu valmöguleikann Night Light eða Blue Light. Þú smellir á það og bláa birtan er á bak og burt!

Tölvugleraugu

Ef þú vilt fara aðra leið til að losa þig við bláu birtuna þá eigum við til frábær BLUblox gleraugu í allskonar stærðum og gerðum sem verja augun fyrir bláu ljósunum sem koma frá tölvu- og sjónvarpsskjáum. Tölvugleraugun minnka þreytu í augum og höfuðverk sem getur myndast við mikla skjánotkun.

Mynd af Katrín Aagestad Gunnarsdóttir
Katrín Aagestad Gunnarsdóttir
Markaðsstjóri