Dansgólfið

3. júní 2024

KaffiKlipp í Nova appinu!

MargfAllt ódýrara kaffi FyrirÞig!

Með KaffiKlippi hjá Nova færðu alla kaffidrykki af seðli hjá Te & Kaffi á langbesta dílnum, alla daga vikunnar. Á hverju KaffiKlippi eru fimm drykkir sem gilda á öllum kaffihúsum Te & Kaffi á höfuðborgarsvæðinu og það eru engar stjörnumerkingar hér - þú getur valið þér flóknasta kaffidrykkinn á geggjuðu verði og sötrað hann áhyggjulaus. Þú getur jafnvel boðið öðrum með þér í kaffi og er Klippið ekki síður sniðugt fyrir vinnustaði sem vilja gera vel við sitt fólk.

Með klippinu færðu allt að 49% afslátt af bollanum sem verður að teljast ansi góður díll - jafnvel sá besti. KaffiKlipp færðu á 2.990 kr og njóttu nú.

En hvernig virkar KaffiKlipp?

Heyrðu! Það er ofureinfalt að fá margfAllt ódýrara kaffi með Kaffiklippinu. Þú bara vippar þér í Nova appið og kaupir þér KaffiKlipp. sem fer svo beint í Vasann. Þegar þú svo mætir á kaffihús Te & Kaffi á höfuðborgarsvæðinu þá einfaldlega dreguru fram klippið og greiðir með með því við afgreiðslukassann.

Ef þú kaffar yfir þig og Klippið klárast , þá fylliru bara á í appinu og fyllir svo á koffíntankinn.

Lengi lifi kaffið!

Fáðu KaffiKlipp FyrirÞig í Nova appinu!

Mynd af Jónas Freyr Guðbrandsson
Jónas Freyr Guðbrandsson
Vörustjóri FyrirÞig