
Nova Heimili
Engin tvö heimili eru eins. Af hverju ættu þau þá að sætta við að sitja föst í fyrirfram ákveðnum pökkum? Nova Heimili tekur við af AlltSaman og gefur þér frelsi til að raða saman heimilispakka sem passar þér og þínu fólki.
Ekki borga fyrir loft!
Með Nova Heimili velur þú hvernig internettengingu þú þarft og hversu margir farsímar eiga að vera í pakkanum. Svo geturðu bætt við því sem hentar, eins og sjónvarpsáskrift eða flakkneti fyrir ferðalagið. Þú þarft því ekki að sætta þig við pakkann sem kemst næst því að henta og láta óþarfa þjónustu fylgja með. Þú setur saman pakkan sem heimilið þarf og getur breytt samsetningunni ef eitthvað breytist. Ekki borga fyrir loft!
eero, ráter framtíðarinnar
Með ljósleiðara hjá Nova Heimili fylgir eero, ráter framtíðarinnar sem fæst aðeins hjá Nova á Íslandi. Ráterinn tryggir að allt heimilið er dekkað með stöðugu sambandi svo þú getur loksins sagt bless við dauða bletti!
Uppsetning á búnaðinum er einfaldari en að hugsa um að drekka vatn! Allt ferlið tekur minna en 5 mínútur. Þú einfaldlega tengir ráterinn með netsnúru og eero appið leiðir þig í gegnum allt saman skref fyrir skref. Sannkölluð plögg & play upplifun, alls engin þörf á heimsókn frá tæknimanni.
Í eero appinu tekur þú öll völd á netnotkun heimilisins! Þar sérð þú hvaða tæki eru tengd og getur stillt hvaða tíma dags þau eigi að hafa aðgang að netinu. Getur lokað á vefsíður sem þú vilt að börnin heimsæki ekki. Í eero appinu er einnig hægt að stilla efnissíur sem útilokar óæskilegt eða óviðeigandi efni eins og til dæmis ákveðnar síður á YouTube.
Rúsínan í pylsu endanum er sú að með eero heyra nú langar stafasúpur sem lykilroð sögunni til. Þú velur nafn og lykilorð netsins og getur því loksins leyft hugmyndafluginu að ráða för.
Settu saman þitt Nova Heimili og hættu að borga fyrir loft.