Dansgólfið

2. nóv 2018

Nova klappar upp íslenska tónlist!

Tónleikaröðin Uppklapp er ný tónleikaröð þar sem íslenskt listafólk kemur fram með nýjum og persónulegum hætti. Fyrstu tónleikarnir fóru fram 1. nóvember sl. þar sem tónlistarkonan Lay Low var gestur kvöldsins. Auk þess sem að flytja sína eigin tónlist sat hún fyrir svörum og sagði gestum frá lögunum sínum. Fengu því gestir að skyggnast inn í hugarheim hennar og hvað hefur veitt henni innblástur í gegnum árin.

Uppklapp er afrakstur samstarfs Nova, Öldu Music og Tónlistans (tonlistinn.is) en tónleikarnir Uppklapp #1 fóru fram hjá Nova í Lágmúla. Hluti af samstarfinu snýr að því að gefa tónlistarfólki tækifæri til þess að kynna sig sérstaklega inni á Tónlistanum, búa til lagalista með sínum uppáhaldslögum og búa til vinatóna úr sínum lögum sem viðskiptavinir Nova geta sett upp hjá sér. Vinatónar eru tónar sem vinir þínir heyra þegar þeir hringja í þig.

Markmið Uppklapps og Tónlistans er að hvetja til hlustunar á íslenskri tónlist og styðja við íslenska tónlistarmenn og renna allar tekjur af miðasölu til listamannsins hverju sinni. Allar tekjur af sölu vinatóna renna einnig ætið beint til tónlistarfólks. Með því að mæta á Uppklapp eða sækja sér vinatón er hægt að leggja sitt af mörkum við að styðja íslenska tónlist.

Næstu tónleikar, Uppklapp #2 fara fram 5. desember þar sem tónlistarkonan GDRN verður gestur kvöldsins

Hægt er að kynna sér listafólk vikunnar á Tónlistanum (tonlistinn.is) en þeir eru líka aðgengilegir á Spotify undir „Tónlistinn“. Þá má kynna sér vinatóna Nova.