Dansgólfið

20. nóv 2026

Pakka­leið­ar­vís­ir Nova

Pakkaleiðarvísir Nova

Pakkúrat réttu gjafirnar fyrir fólkið þitt

Klukkan er einhvern veginn alltaf korter í jól og það getur verið mikill hausverkur að finna út hver á að fá hvaða gjöf! Við settum því saman pakkaleiðarvísi Nova sem er algjört töframeðal við þessum hausverk!

Fyrir þau músíkölsku Flest erum við hrifin af góðri tónlist en við þekkjum líka nokkur sem gætu hreinlega ekki lifað án hennar! Sláðu tón í tilveruna hjá tónelskandi fólkinu í þínu lífi og gefðu gjöf sem hljómar vel! Fyrir þau sem lifa sig algjörlega inn í músíkina eru AirPods Max 2 og Beats 360 með virkri hljóðeinangrun sígild gjöf.

Fyrir þau sem vilja eitthvað aðeins settlegra eru þráðlaus heyrnartól eins og AirPods 5 og Galaxy Buds4 Pro fullkomnlega fyrirferðalítil. Með Sonos Play gefurðu gangandi partý og vínylunnandinn sem vill gera þetta upp á gamla mátann verður kátur með Sony-plötuspilara með Bluetooth.

Fyrir þau kraftmiklu Ræktarhetjur, íþróttaálfar, hlaupagarpar og þau sem telja skrefin í hverri gönguferð eiga skilið flott snjallúr. Apple Watch Series 12 með LTE heldur þeim tengdum þótt síminn verði eftir heima. Xiaomi Smart Band 10 er létt heilsuarmband sem fylgist með svefni, púlsi og hreyfingu án þess að sprengja budduna.

Fyrir þau sítengdu Við þekkjum öll einhver sem eru alltaf að stússast eitthvað í tölvunni, svara tölvupóstum, brjóta heilann yfir náminu eða deila myndum af köttunum og barnabörnunum á samfélagsmiðlum. MacBook Neo sló heldur betur í gegn á árinu og er fullkomin fyrir skólann, vinnuna eða bara krossgátur.

Fyrir þau leikglöðu Hörðu pakkana finnurðu alltaf hjá Nova og fyrir gameverurnar í þínu lífi er PlayStation 5 Slim að sjálfsögðu endakallinn í jólagjafaleiknum!

Fyrir þau spjallglöðu Þekkirðu einhvern sem þarf að fara að uppfæra græjuna sína? iPhone 18 Pro Max er fyrir þau sem vilja það allra besta og Galaxy S26 FE er flottur og hagstæður kostur fyrir þau sem eru Samsung-megin í lífinu. Svo eru sum sem vilja minnka skjátímann … Þá er einfaldur takkasími pakkúrat málið.

Fyrir þau félagslyndu Eru bestu stundirnar okkar ekki þegar tækin ná engri tengingu en við náum fullu sambandi við hvert annað? Fyrir slíkar stundir eru spil og þrautir eins og Hitster Bingo og Super Decoder-þrautapúslið gulls ígildi í jólaboðinu.

Fyrir þau yngstu Við seljum reyndar engin kerti en spilin eru á sínum stað! Litlu snillingarnir fá leikföng og spil sem halda þeim uppteknum langt fram yfir áramót.

Finndu pakkúrat réttu gjöfina Enn í vafa? Rúllaðu í gegnum pakkaleiðarvísi Nova og sjáðu allar hugmyndirnar á einum stað. Þú getur líka litið við í næstu verslun Nova og pakkað saman jólunum með okkur!