
Splunkunýjar snjalllokur mættar í forsölu hjá Nova
Á Samsung Unpacked-kynningunni, sem var að ljúka rétt í þessu, kynnti Samsung næstu kynslóð snjallsíma sem sveigjast og beygjast! Við erum að sjálfsögðu að tala um Galaxy Z Flip8, Galaxy Z Fold8 og Galaxy Z Fold8 Ultra! ...En það er ekki allt! Það er líka úr að velja hjá Samsung því snillingarnir þar kynntu einnig til leiks tvö glæný snjallúr, Galaxy Watch9 og Galaxy Watch Ultra2.
Galaxy Z Flip8
Galaxy Z Flip8 heldur í sitt vinsæla samlokusnið en fær öfluga uppfærslu á öllum helstu sviðum! Græjan verður léttari, fær þynnri umgjörð, öflugri rafhlöðu og stærri skjá. Flip8 er þéttur og nettur í sniðum en opnast í 6,9" skjá þegar þú breiðir úr honum!
Galaxy Z Fold8 og Galaxy Z Fold8 Ultra
Galaxy Z Fold8 og Fold8 Ultra eru sannkallaðir þúsundþjalasmiðir og henta einstaklega vel fyrir öll verkefni, bæði í leik og starfi! Stórir skjáir Fold8-græjanna sjá til þess að það er leikur einn að halda milljón boltum á lofti í einu. Svara tölvupóstum? Ekkert mál! Horfa á uppáhaldsþættina þína? Ekkert mál! Vinna í helling af öppum samtímis? Bara alls ekkert mál!
Fyrir þau sem vilja ekkert nema það allra besta er Galaxy Z Fold8 Ultra rétta græjan. Þetta tryllitæki kemur fullbúið með 8" skjá, 200 MP myndavél og allt að 16 GB vinnsluminni.
Snjallt er úrvalið!
Nýja Galaxy Watch9 gerir allt sem þú vilt að snjallúrið þitt geri og meira til! Watch9 fylgist með svefni, hjartslætti og heilsu. Snjallúrið styður einnig eSIM svo þú getur hringt og tekið á móti skilaboðum án þess að vera með símann í vasanum. Þegar ævintýrin kalla er gott að hafa Galaxy Watch Ultra2 við hendina! Þessi ofurgræja býður upp á allt að 80 klukkustunda rafhlöðuendingu, er vatnsheld niður á 100 metra dýpi og þolir bæði mikinn kulda og háan hita. Watch Ultra2 er jafnframt þinn eigin einkaþjálfari með öflugum fitness-eiginleikum þar sem gervigreind lærir sífellt meira um þig og líkama þinn með hverri æfingu.
Kaupaukar úr öllum áttum hjá Nova!
Við kaup á Galaxy Z Flip8, Galaxy Z Fold8 eða Galaxy Z Fold8 Ultra í forsölu færðu betra verð á græjunum, tvöfalt meira geymsluminni, Galaxy Buds4 Pro og 30 daga áskrift að Sagnalandi í kaupauka. Við kaup á Galaxy Watch9 í forsölu fylgir einnig aukaól.
Ef þú kaupir Samsung snjalllokuna þína hjá Nova gætir þú fengið græjuna þína endurgreidda að fullu ásamt djúsí græjupakka frá Samsung! Við drögum út eitt heppið að forsölutímabilinu loknu, forsölunni líkur 16. ágúst!