
Samfélagsmiðlar og snjallsímar eru frábærir og órjúfanlegur hluti af okkar daglega lífi. Símtækin einfalda okkur vissulega lífið en þau mega aldrei taka það alveg yfir. Það er nefnilega eitthvað verulega bogið við það að sóa öllum tímanum sínum í símanum.
Óhófleg skjánotkun getur haft slæm áhrif á geðheilsu okkar, valdið kvíða og vanlíðan. Þess vegna er mikilvægt að gefa litla skjánum stundum frí. Slökkva á öllum tilkynningum og kveikja aftur á tilfinningum. Njóta þess að vera til og eiga raunverulegar samverustundir með okkar besta fólki.
Með, Það er eitthvað bogið við þetta herferðinni viljum við hvetja fólk til þess að vera meðvitað umskjátímann sinn, skrunið sitt á samfélagsmiðlum og stundirnar sem það ver fyrir framan sjónvarpið.
Með Nova er hægt að upplifa heilan helling og við hvetjum öll til að lifa lífinu lifandi, gólandi, glamrandi og ljómandi!
Nýttu þér Nova fríðindin til þess að skapa fleiri gæðastundir með vinum og fjölskyldu - og sparaðu í leiðinni!