Dansgólfið

21. maí 2026

Tilkynn­ing um skil­mála­breyt­ingu

Tilkynning um skilmálabreytingu

Á dögunum skiptum við hjá Nova um innheimtufyrirtæki og í kjölfarið af þeirri aðgerð höfum gert breytingar á grein 2.7 í skilmálunum okkar. Með breytingunni hefur það tímamark, áður en ógreidd krafa fer í milliinnheimtu, verið stytt með eftirfarandi hætti;

„2.7 Greiði viðskiptavinur ekki reikninga frá Nova á gjalddaga og líði eindagi án þess að greiðsla hafi verið innt af hendi, er viðskiptavinur minntur á ógreiddan reikning af Nova. Ef krafan er ekki greidd, er send innheimtuviðvörun sex (6) dögum eftir eindaga. Innheimtuviðvaranir frá Nova og upplýsingar um til hvers þær kunna að leiða eru sendar með tölvupósti á netfang viðskiptavinar, með pósti á uppgefið lögheimili viðskiptavinar eða í heimabanka viðskiptavinar. Sé krafan ekki greidd 28 20 dögum eftir eindaga, í tilviki fyrirtækja, og 50 30 dögum eftir eindaga, hjá einstaklingum, verður hún flutt í milliinnheimtu og greiðir viðskiptavinur þann kostnað sem af slíku ferli hlýst sbr. Innheimtulög nr. 95/2008. Í þeim tilvikum, ef greiðandi þjónustu Nova er annar en rétthafi, sbr. gr. 1.2. í skilmálum þessum, og greiðandi verður ekki við greiðsluáskorunum, áskilur Nova sér rétt til að krefja rétthafa um greiðslu þess sem er í vanskilum. Nova getur synjað viðskiptavini og rétthafa um frekari þjónustu vegna vanskila.“

Að öðru leyti er innheimtuferlið óbreytt.

Í hnotskurn felur breytingin í sér:

Fyrir einstaklinga

  •   Áður: krafa fór í milliinnheimtu 50 dögum eftir eindaga
    
  •   Nú: krafa fer í milliinnheimtu  30 dögum eftir eindaga
    

➡️ Stytting um 20 daga

Fyrir fyrirtæki

  •   Áður: krafa fór í milliinnheimtu 28 dögum eftir eindaga
    
  •  Nú: krafa fer í milliinnheimtu 20 dögum eftir eindaga
    

➡️ Stytting um 8 daga

Mynd af Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Sylvía Kristín Ólafsdóttir
Skemmtana- og forstjóri