LjósNemi
Námsfólk fær 4.100 kr. afslátt af Ljósleiðara hjá Nova!
Ljósleiðarinn er öflug háhraða nettenging inn á nútíma heimilið. Námsfólk hjá Nova fær besta dílinn á heimaneti sem er í boði. Verum í sambandi og þeysumst saman um netið!
Þú getur líka verið með 4.5G / 5G heimanet í stað Ljósleiðara!

Smelltu þér í Hjálpina og finndu allskonar upplýsingar, leiðbeiningar og tæknital um allt sem við bjóðum upp á.
LjósNemi
Hvernig fæ ég skóladílinn?
Þú einfaldlega skráir þig hér fyrir ofan og við munum svo bjalla á þig innan skamms og klára þetta með þér.
Ég var með skóladílinn á síðasta skólaári og er enn að læra, fæ ég dílinn áfram?
Skóladíllinn fyrir skólaárið 2021-2022 gildir til 1. sept 2022. Þar sem þú ert enn nemi getur þú auðvitað haldið áfram með skóladílinn en þú þarft bara að senda okkur póst á nova@nova.is eða á netspjallið á nova.is með mynd af gildu skólaskírteini eða staðfestingu á skólavist og við endurnýjum skóladílinn til 1. sept 2023.
Er skóladíllinn í boði fyrir ákveðna skóla?
Skóladíllinn er í boði fyrir alla nemendur sem hafa náð 18 ára aldri og eru skráðir í skóla á Íslandi.
Ég er nemi en get ekki fengið Ljósleiðara, get ég fengið skóladíl?
Auðvitað! Nemar sem geta ekki fengið Ljósleiðara heim til sín fá 2.790 kr. afslátt af 5G og 4.5G heimaneti!
Get ég fengið skóladílinn hvenær sem er á skólaárinu?
Já, skóladílinn er hægt að fá hvenær sem er. Við mælum samt með því að drífa í því svo þú hafir hann í sem flesta mánuði.
Hversu lengi gildir skóladíllinn?
Skóladíllinn gildir þar til að nýtt skólaár byrjar eða til 1. september ár hvert.
Hvernig staðfesti ég skólavist til að fá skóladílinn?
Til að staðfesta skólavist þarftu að framvísa skólaskírteini eða sýna fram á aðra staðfestingu á skólavist. Það sýnir þú okkur í verslun eða sendir okkur mynd á nova@nova.is eða netspjallið á nova.is
Ég á minn eigin ráter, get ég notað hann?
Já! Ef þú átt þinn eigin ráter þá getur þú auðvitað notað hann og hann dregst frá mánaðargjaldinu.