Losaðu þig við myndlykilinn
Þú færð sjónvarpsgræjuna á tilboði með ótakmörkuðum Ljósleiðara hjá Nova!
Apple TV 4K eða Mi Android TV með ótakmörkuðum Ljósleiðara hjá Nova!
Hvernig fæ ég Mi Android TV með 0 kr. útborgun?
Vertu með ótakmarkaðan Ljósleiðara hjá Nova og þú færð Mi Android TV með 0 kr. útborgun. Fullt verð er 9.990 kr. Þú borgar 1.690 kr. á mánuði í 6 mánuði fyrir Mi Android TV og færð á móti sömu upphæð í afslátt af ótakmörkuðum Ljósleiðara í 6 mánuði. Þú borgar því í raun ekki neitt fyrir græjuna!
Ertu Exceltýpan? Hér er reikningsdæmið fyrir netreikninginn:
| Ljósleiðari | 6.990 kr |
| Aðgangsgjald GR | 3.290 kr. |
| Leiga á router | 890 kr. |
| Mi Android TV (í 6 mánuði) | 1.690 kr. |
| Afsláttur vegna Mi Android TV (í 6 mánuði) | -1.690 kr. |
| Samtals | 11.170 kr. |
Hvernig fæ ég Apple TV 4K með 9.990 kr. útborgun?
Vertu með ótakmarkaðan Ljósleiðara hjá Nova og þú færð Apple TV með 9.990 kr. útborgun. Fullt verð á Apple TV er 29.990 kr. Þú greiðir 9.990 kr. við kaup á Apple TV. Mánaðarlega í 12 mánuði greiðir þú 1.690 kr. En leyndarmálið er að þú ert ekki að borga 1.690 kr. því þú færð 1.690 kr. afslátt af ótakmörkuðum Ljósleiðara á móti – þú borgar því aðeins 9.990 kr. fyrir græjuna!
Ertu Exceltýpan? Hér er reikningsdæmið fyrir netreikninginn:
| Ljósleiðari | 6.990 kr |
| Aðgangsgjald GR | 3.290 kr. |
| Leiga á router | 890 kr. |
| Apple TV (í 12 mánuði) | 1.690 kr. |
| Afsláttur vegna Apple TV (í 12 mánuði) | -1.690 kr. |
| Samtals | 11.170 kr. |
Hvað ef ég er nú þegar með Ljósleiðara hjá Nova?
Tilboðið gildir fyrir alla, með ótakmörkuðum Ljósleiðara hjá Nova. Ef þú ert nú þegar með hann þá getur þú bara smellt þér á tilboðið.
Ég fékk tilboð á Apple TV 4K fyrir stuttu síðan, get ég fengið annað tilboð núna?
Það er aðeins hægt að vera með eitt tilboð í einu. Það er ekki hægt að fá tilboð ofan á tilboð — eða eins og einhver sagði, þú færð ekki tvennutilboð á Megaviku.
Get ég fengið fleiri en eitt tilboð?
Þú getur fengið eitt tilboð fyrir hverja tengingu með ótakmörkuðum Ljósleiðara hjá Nova. En svo getur þú auðvitað keypt ótakmarkað magn af Apple TV og Mi Android TV á fullu verði, sem er líka gott verð.
Fyrirtækið mitt er að greiða fyrir nettenginguna, get ég fengið tilboðið?
Allir geta nýtt sér tilboðið, þ.e. ef þú ert ekki með einhvers konar tilboð á fyrirtækjatengingu nú þegar. Ekki er hægt að fá tilboð ofan á annað tilboð.
Þarf ég kreditkort til að nýta mér Apple TV eða Mi Android TV tilboðið?
Þú greiðir Ljósleiðarann þinn á þann hátt sem þér hentar og tilboðið þitt tengist þeim greiðslumáta. Viltu kreditkort eða heimabanka? Við græjum það!
Þú færð alltaf afsláttinn af ótakmörkuðum Ljósleiðara og lækkar reikninginn!
Get ég verið með Apple TV eða Mi Android TV tilboð og fengið ótakmarkað net í farsímann á 3.190 kr.?
Að sjálfsögðu! Með því að vera með Ljósleiðara hjá Nova færð þú ótakmarkað net í farsímann á 3.190 kr.
Get ég hætt í þjónustunni?
Þú getur alltaf hætt. Bindingar eru bara fyrir skíðaskó. Okkur finnst mjög leiðinlegt ef þú þarft að hætta af einhverjum óskiljanlegum ástæðum en við skulum fyrst spjalla saman og sjá hvort það er eitthvað sem við getum bætt. Ef þú ert aftur á móti að flytja til Fjarskanistan og hættir að borga Ljósleiðara hjá Nova áður en afslátturinn klárast missir þú af afslættinum. Þú átt samt auðvitað græjuna. Þú tekur hana bara með þér hvert sem þú ferð og kemur vonandi fljótt aftur.
Hvað gerist ef skipt er um greiðanda á þjónustunni?
Afslátturinn fylgir tengingunni, þannig að ef skipt er um greiðanda á ljósleiðaraþjónustunni fær enginn óvæntan reikning. Afslátturinn heldur áfram að virka eins og áður.
Hvað er Apple TV 4K?
Apple TV 4K styður 4K háskerpusjónvörp og býður upp á mögnuð myndgæði með High Dynamic Range. A10X örgjörvi, Bluetooth 5.0 þráðlaus tækni og HDMI 2.0. Þú getur sleppt myndlyklinum og horft á sjónvarpið í gegnum netið t.d. með Nova TV, áskrift að netveitu eða notað önnur öpp sem í boði eru. Apple TV 4K er líka tilvalið til að hlusta á tónlist, spila tölvuleiki eða rúlla í gegnum myndasafnið.
Hvað er Android TV Mi Box?
Mi Box er lítið svart box sem gerir þér mögulegt að vera þinn eigin dagskrárstjóri. Boxið kemur uppsett með Android TV stýrikerfi sem býður uppá ótal möguleika eins og Google Assistance, Chromecast og Google búðina. Horfðu á allar uppáhalds streymisveiturnar þínar eins og Nova TV og Netflix, spilaðu tónlist af Spotify og YouTube eða sæktu þér leiki og önnur smáforrit í Google búðinni. Þú getur notað röddina til að stjórna því og stýrikerfið aðstoðar þig með því að sýna þér nýtt og áhugavert efni, sérsniðið að þínum þörfum.
Get ég fengið aðstoð með uppsetningu á Apple TV?
Auðvitað! Hér getur þú skoðað okkar snjöllu Apple TV leiðbeiningar.
Ef leiðbeiningarnar eru eitthvað að vefjast fyrir þér er lítið mál að fá aðstoð á netspjallinu eða í síma 519 1919.
Get ég fengið aðstoð með uppsetningu á Mi Android TV?
Auðvitað! Hér getur þú skoðað okkar snjöllu Mi Android TV leiðbeiningar.
Ef leiðbeiningarnar eru eitthvað að vefjast fyrir þér er lítið mál að fá aðstoð á netspjallinu eða í síma 519 1919.
Þarf ég áfram að nota myndlykilinn? Eða má ég það?
Það er einfalt að horfa á sjónvarp hjá Nova. Þú sleppir einfaldlega myndlyklinum og nýtir þér nýjar leiðir að ótakmarkaðri afþreyingu í gegnum snjalltæki heimilisins, tölvuna, spjaldtölvuna, leikjatölvuna eða snjallsjónvarpið. Hér eru nokkrar leiðir sem við mælum með. Ef þú ert með Sagemcom 4K myndlykil frá Símanum getur þú notað hann á ljósleiðaraþjónustu eða 4.5G neti hjá Nova en við mælum með að þú segir bless við óþarfa mánaðargjald.
Hvar sæki ég íslensku sjónvarpsstöðvarnar?
Við mælum með Nova TV til að horfa á íslensku sjónvarpsstöðvarnar. Einnig mælum við með að þú kaupir áskrift að Netflix á netflix.com og hámhorfir á alla vinsælustu þættina.
Get ég notað Apple TV eða Mi Android TV með hvaða sjónvarpi sem er?
Ef sjónvarpið þitt er með HDMI tengi getur þú tengt Apple TV eða Mi Android TV.