Dansgólfið

21. nóv 2022

Stuð­svell­ið 2022!

Svellið á Ingólfstorgi er fyrir löngu orðinn ómissandi hluti af jólunum fyrir marga, enda er fátt skemmtilegra en að skella sér á skauta þegar líða fer að jólum.

Jólaandinn mun svo sannarlega svífa um svellið í ár sem mun nú bera hið stórskemmtilega nafn Stuðsvellið í samstarfi við Orkusöluna. Undanfarin ár hafa um 20 þúsund manns skautað inn í jólin á Stuðsvellinu á Ingólfstorgi og í ár getur þú bókað þína jólastund á Stuðsvellinu og notið þess að skauta með þínu uppáhalds fólki. Við mælum með því að bóka sér tíma með fyrirvara til að sem flestir fái að njóta.

Það er lítið mál að bóka skautastund fyrir þig og þína

  • Smelltu þér á nova.is
  • Veldu dagsetningu, tíma og hveru mörg ætla að skauta saman.
  • Smelltu á staðfesta og græjaðu greiðsluna.
  • Þá er bara allt klárt! Við mælum með því að þú mætir 10 mínútum áður en að þín gleðistund byrjar, svo að þú sért örugglega með skauta á fótum og hjálm á höfði þegar þín skautastund rennur upp.

Ef þú vilt bóka fyrir hópa eins og vinnustaði eða skólahóp þá sendir þú tölvupóst með fyrirspurn á netfangið studsvellid@nova.is

Ef þú kemst ekki á Stuðsvellið eða forfallast þá sendir þú einfaldlega tölvupóst á nova@nova.is með ósk um nýja dagsetningu og við sjáum hvort við komum þér og þínum ekki örugglega fyrir!

Léttar veitingar og drykki má finna við Stuðsvellið til að halda á þér hita á milli skautaferða og koma þér í jólaskapið! Hver veit nema það leynist svo gómsæt og skemmtileg tilboð í Nova appinu þegar á svellið er komið!

Stuðsvellið er opið flest alla daga í desember frá kl. 12:00 – 22:00.

Opnunartíma má finna hér

Hlökkum til að sjá þig!

Mynd af Katrín Aagestad Gunnarsdóttir
Katrín Aagestad Gunnarsdóttir
Markaðsstjóri