Farsímaþjónusta
Frelsi
Ótakmarkað tal og SMS á 0 kr.
Þú talar ótakmarkað og sendir SMS á 0 kr. á Íslandi og þegar þú ert í EES í Frelsi hjá Nova! Tilkynningaskylda fylgir ekki í frelsi. Prófaðu að slökkva á öllu þessu áreiti og finndu frelsið sem fylgir lífi án rauðu deplanna. Hugsaðu um tilfinningar en ekki tilkynningar.
Vertu á staðnum.

Almennt
Hvað er Frelsi?
Frelsi er fyrirframgreidd þjónustuleið í farsímaþjónustu. Í farsímaþjónustu hjá Nova bæði Frelsi og Áskrift er frítt að hringja og senda SMS á Íslandi og líka þegar þú ert í Evrópu (EES).
Í Frelsi er hægt að fylla inn á sig inneign eftir þörfum eða vera með mánaðarlega áfyllingu sem er gjaldfærð sjálfkrafa og kemur í veg fyrir að þú verðir inneigna- eða netlaus. Til að númerið haldist galopið þarftu einfaldlega að kaupa áfyllingu á þriggja mánaða fresti.
Hvað er mánaðarleg áfylling?
Mánaðarleg áfylling er sjálfvirk áfylling sem kemur inn mánaðarlega. Mánaðarleg áfylling er hagstæðari og þægilegri fyrir þá sem nota netið í hverjum mánuði.
Hvernig kem ég með símann minn til Nova?
Það kostar ekkert og tekur aðeins 10 mínútur að flytja númerið yfir til Nova. Það er rosa auðvelt að flytja númerið sjálfur á nova.is ef þú vilt gera þetta með okkur getur þú auðvitað heyrt í okkur á netspjallinu eða hringt í þjónustuverið í 519 1919 og við klárum málin saman. Við sendum svo símkortið heim til þín eða þú sækir það til okkar í næstu verslun.
Hvar get ég séð hvað ég á mikla inneign eftir?
Í Stólnum í Nova appinu er ekkert mál að fylgjast með því hvað þú átt mikla inneign og netinneign eftir.
Hvað gildir inneign lengi?
Krónuinneign gildir í 90 daga frá því að hún er keypt og netinneign í 30 daga.
Mánaðarleg áfylling gildir í mánuð frá þeim degi sem hún er keypt og endurnýjast sjálfkrafa mánaðarlega.
Hvað kostar Frelsi?
Hvað kostar að vera með Frelsi hjá Nova?
Það er frítt að hringja og senda SMS á Íslandi og líka þegar þú ert í Evrópu (EES) hjá Nova. Til að númerið haldist galopið þarftu einfaldlega að kaupa áfyllingu á þriggja mánaða fresti.
Hvað gerist ef ég klára mánaðarlegu áfyllinguna mína á innan við mánuði?
Mánaðarleg áfylling kemur inn sjálfkrafa mánaðarlega. Ef þú vilt ekki bíða, getur þú keypt nýja mánaðarlega áfyllingu og gamla áfyllingin dettur þá út. Þá kemur mánaðarlega áfyllingin strax inn og næsta áfylling mánuði frá henni.
Ef þetta gerist oft getur verið betra að kaupa stærri áfyllingu.
Hvernig breyti ég þjónustu?
Hvernig breyti ég um greiðslumáta á mánaðarlegri áfyllingu?
Var gamla greiðslukortið að renna út og þú fékkst nýtt? Ekkert mál. Heyrðu í okkur á netspjallinu eða í 519 1919 og við klárum málið saman.
Ég er í Frelsi og vil breyta í Áskrift, hvernig geri ég það?
Til að breyta í Áskrift þarftu að koma til okkar í verslun með skilríki eða senda okkur tölvupóst á nova@nova.is með beiðninni frá skráðu netfangi. Endilega heyrðu í okkur á netspjallinu eða í síma 519 1919 ef það er eitthvað.
Ef ég breyti úr Frelsi í Áskrift tapa ég inneigninni minni?
Þú tapar ekki neinu! Ef þú átt netinneign getur þú notað restina af henni þó þú færir þig strax yfir í Áskrift, ef þú átt krónuinneign mun sú upphæð koma sem afsláttur af mánaðargjaldinu í Áskrift.
Hvernig breyti ég um notanda á númerinu?
Greiðandi númersins getur breytt um notanda númersins. Heyrðu í okkur á netspjallinu eða í 519 1919.
Hvernig skipti ég um rétthafa númersins?
Rétthafi er eigandi númersins og jafnframt greiðandi þess. Til að skipta um rétthafa þarf núverandi rétthafi að samþykkja, sem og verðandi rétthafi. Heyrðu í okkur á netspjallinu eða í 519 1919 og við klárum málið saman.
Hvernig slekk ég á Talhólfinu?
Það er ekkert mál að slökkva á Talhólfinu í Stólnum í Nova appinu.
Hvernig slekk ég á vinatóninum?
Ef þú vilt frekar hafa gamla góða sóninn þá getur þú slökkt á vinatóninum í stólnum í Nova appinu.
Hvernig breyti ég um vinatón?
Það er lítið mál að breyta um vinatón, þú græjar það í Nova appinu eða á tónlistinn.is.
Mínus átján
Hvað er mínus átján?
Mínus átján er frí mánaðarleg áfylling í Frelsi fyrir alla yngri en átján ára. Innifalið er 1 GB á Íslandi og ótakmörkuð símtöl og sms á Íslandi og í Evrópu (EES).
Hvernig set ég númer í mínus átján?
Til að fá númer í mínus átján skráir þú það sjálfur á nova.is eða heyrir í okkur á netspjallinu eða í síma 519 1919 og við klárum málin.
Ég er í útlöndum
Hvað get ég notað mörg GB af áfyllingunni minni þegar ég ferðast til Evrópu, EES?
Innifalið gagnamagn er mismunandi eftir áfyllingum en þú getur séð allt um það í Stólnum í Nova appinu eða í verðskránni.
Hvað kostar að nota símann í útlöndum?
Það fer alveg eftir því hvert þú ert að fara! Skoðaðu verðskrána.
Get ég notað símann minn þegar ég ferðast utan EES?
Nova býður farsímaþjónustu í yfir 216 löndum í samstarfi við erlend símafélög. Viðskiptavinir Nova í Áskrift og Frelsi eru því í góðu sambandi á ferðum sínum erlendis. Í flestum löndum er í boði 3G netþjónusta en 4G netþjónusta er í boði í sífellt fleiri löndum.
Kynntu þér vel hvað kostar að nota Nova farsíma erlendis.
Hvað er varanlegt reiki í Evrópu (EES)?
Þú getur notað símann þinn innan Evrópu (EES) þegar þú ert að ferðast erlendis og þá er notkun rukkuð samkvæmt reglugerð EU um Roam like at home.
Ef að notkun þín er meiri erlendis (EES) en á Íslandi síðustu 4 mánuði telst notkun þín varanleg og þá er rukkað álag fyrir símtöl og SMS skv. verðskrá. Ekki er rukkað álag á netnotkun svo þú getur notað EES gagnamagnið þitt eins og áður.
Við sendum viðskiptavinum SMS til að upplýsa þegar slík rukkun hefst.
Ég er að hringja í útlensk númer
Hvað kostar að hringja til útlanda?
Það fer alveg eftir því til hvaða lands þú ætlar að hringja. Fléttu upp landinu sem þú ert að hringja til hér.
Ef þú ert að hringja reglulega til útlanda, gæti verið að útlandapakkinn henti þér betur.
Óskráð frelsi
Hvað er óskráð frelsi?
Óskráð frelsi er þegar númerið er ekki skráð á neina kennitölu eða nafn. Þá gilda ekki sömu réttindi og hjá skráðum númerum, til dæmis er ekki hægt að fá nýtt símkort ef það týnist.
Hvernig skrái ég óskráð frelsi?
Til að skrá óskráð frelsi þarftu að koma til okkar í verslun með símann og skilríki og við græjum þetta saman.
Tæknital og þjónustusvæði
Hvernig fæ ég rafræn skilríki?
Til að fá rafræn skilríki í farsímann þarf símkortið þitt að styðja þjónustuna. Þú getur athugað hvort símkortið þitt styðji rafræn skilríki.
Ef kortið þitt styður ekki rafræn skilríki komdu þá við í næstu verslun eða heyrðu í okkur annað hvort á netspjallinu eða í 519 1919 og við sendum nýtt símkort til þín.
Í framhaldinu virkjar þú rafrænu skilríkin í bankanum þínum.
Hvað kostar að nota rafræn skilríki?
Það kostar ekkert að nota rafræn skilríki innanlands. Notkun rafrænna skilríkja erlendis fylgir verðskrá í hverju landi, 1 SMS pr. notkun.
Hver er munurinn á 4G og 4.5G neti?
4G net getur náð mjög fínum hraða, eða allt frá 25 megabitum á sekúndu og upp í 50 megabita við eðlilegar aðstæður. Það er nóg til að streyma 4K myndefni við góðar aðstæður, og gott betur.
4.5G er okkar nýjasta kerfi og býður upp á ljósleiðarahraða á farsímaneti. Það nær enn meiri hraða og getur komið þér umfram 100 megabita á sekúndu.
Hvað er þetta VoLTE?
Sko, VoLTE táknar ekki volgt te, heldur stendur það fyrir Voice over Long-Term Evolution sem þýðir rödd yfir langtímaþróun… eða eitthvað. Allavega, ef síminn þinn styður svoleiðis, þá streymum við símtalinu beint yfir netið í hágæðahljómi og háskerpu — í stað þess að það fari í gegnum símkerfið. Þú heyrir muninn… vonandi!
Hvernig er þjónustusvæðið hjá Nova?
Farsíma- og netkerfi Nova nær til 95% landsmanna og Nova býður farsímaþjónustu í yfir 216 löndum í samstarfi við erlend símafélög.
Hvernig hringi ég í Talhólfið?
Númerið á Talhólfinu þínu er 770 1717.
Hjálp! Ég þarf aðstoð!
Hvað geri ég ef símkort tapast?
Ef símkort tapast er mikilvægt að tilkynna það til okkar á netspjallinu eða í 519 1919 og við lokum á það.
Ég er í útlöndum og netið virkar ekki!?
Það er gott að athuga fyrst hvort það sé ekki örugglega kveikt á Data Roaming, en það þarf að vera kveikt til þess að geta notað netið erlendis.
Einnig er gott að slökkva og kveikja á tækinu ef netið dettur ekki strax inn.
Í Nova appinu eru líka stillingar sem þú getur stjórnað „Notkun erlendis“ og „Netið í símann erlendis“, þær gætu verið lokaðar. Athugið ef þú ert ekki með net eða WiFi getur þú ekki kveikt á stillingunum en þú getur líka heyrt í okkur á netspjallinu eða í þjónustuver okkar í síma 519 1919.
Ég er í útlöndum og síminn virkar ekki!?
Það virkar oft að slökkva og kveikja á farsímanum svo það er gott að byrja á því. Þá velur síminn sjálfvirkt eitt af símafélögunum í útlandinu.
Ef það virkar ekki getur þú prófað að velja símafélag handvirkt. Í flestum símatækjum er það gert í stillingum og valið carrier eða network.
Í Nova appinu eru einnig stillingar sem þú getur stjórnað „Notkun erlendis“ og „Netið í símann erlendis“, þær gætu verið lokaðar. Athugið ef þú ert ekki með net eða WiFi getur þú ekki kveikt á stillingunum en þú getur líka heyrt í okkur á netspjallinu eða í þjónustuver okkar í síma 519 1919.
2 Fyrir 1 af mánaðarlegum áfyllingum.
Ég er ekki með mánaðarlega áfyllingu. Hvernig fæ ég 2 fyrir 1 tilboðið?
Þú kaupir mánaðarlega áfyllingu í Nova appinu eða á refill.nova.is, þá færð þú aðra eins að auki.
En hvað ef ég er nú þegar með mánaðarlega áfyllingu?
Ekkert mál. Ef þú ert með mánaðarlega áfyllingu en vilt fá 2 fyrir 1 þá er einfaldast að skrá sig fyrir tilboðinu í Nova appinu eða á 2 fyrir 1. Við næstu áfyllingu færð þú 2 fyrir 1 af henni.
Ég er með mánaðarlega áfyllingu og 2 fyrir 1 tilboðið. Af hverju fæ ég tilboðið ekki strax?
Ef þú ert í mánaðarlegri áfyllingu þá færð þú 2 fyrir 1 af næstu áfyllingu eftir að þú sækir tilboðið. Ef biðin er óbærileg getur þú auðvitað alltaf skráð þig aftur fyrir nýrri mánaðarlegri áfyllingu og þá færðu strax 2 fyrir 1 af þeirri áfyllingu.
Hvaða gagnamagn er innifalið í 2 fyrir 1?
Þú færð mánaðarlegu áfyllinguna sem þú ert með í dag og aðra eins að auki. Fría áfyllingin gildir á Íslandi í mánuð í senn. Þú færð 2 fyrir 1 af öllum mánaðarlegum áfyllingum!
Ég er í frelsi með netpakka. Er hægt að fá 2 fyrir 1 af svoleiðis?
Tilboðið gildir af mánaðarlegum áfyllingum. Það er ekkert mál að fá mánaðarlega áfyllingu í Nova appinu eða á refill.nova.is og fá 2 fyrir 1!
Hvað gildir 2 fyrir 1 tilboðið lengi?
Tilboðið gildir með mánaðarlegum áfyllingum!
Ég vil koma í Frelsi til Nova, get ég fengið 2 fyrir 1 tilboðið?
Já heldur betur! Þú einfaldlega kaupir mánaðarlega áfyllingu í Nova appinu eða á refill.nova.is og færð aðra eins að auki.